19. júlí
dagsetning
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2024 Allir dagar |
19. júlí er 200. dagur ársins (201. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 165 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 64 - Bruninn mikli í Róm: Eldur braust út í Róm og brann borgin í 9 daga.
- 514 - Hormisdas varð páfi.
- 1255 - Á Þveráreyrum í Eyjafirði verð mikill bardagi, sem nefndur hefur verið Þverárfundur (eða Þverárbardagi), þar sem hundruð manna börðust og á annan tug féllu. Þar féll meðal annarra Eyjólfur ofsi Þorsteinsson.
- 1333 - Skotar bíða afgerandi ósigur í orrustunni um Halidon-hæð í Skosku sjálfstæðisstyrjöldunum.
- 1553 - María 1. var lýst drottning Bretlands og lafði Jane Grey sett af.
- 1627 - Tyrkjaráninu lauk og héldu ræningjarnir heim á leið til Algeirsborgar í Alsír með feng sinn, um 400 manns, sem þeir höfðu rænt í Grindavík, Vestmannaeyjum og á Austfjörðum.
- 1666 - Uppreisnarher Jerzy Sebastian Lubomirski vann sigur á her Pólsk-litháíska samveldisins við Montwy.
- 1682 - Jósúa mikli tók við af föður sínum Jóhannesi 1. sem Eþíópíukeisari.
- 1709 - Helgu Magnúsdóttur, barnsmóður Þórðar Þorkelssonar Vídalín, var drekkt fyrir barnsmorð.
- 1813 - Fyrstu menn gengu á Hvannadalshnjúk í Öræfajökli og voru það norskur mælingamaður, Hans Frisak, og Jón Árnason, hreppstjóri.
- 1821 - Georg 4. var krýndur konungur Bretlands.
- 1870 - Fransk-prússneska stríðið hófst með stríðsyfirlýsingu Frakka.
- 1930 - Síldarverksmiðjur ríkisins hófu síldarbræðslu á Siglufirði.
- 1949 - Laos fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
- 1952 - Sumarólympíuleikar voru settir í Helsinki.
- 1953 - Á Arnarstapa í Vatnsskarði í Skagafirði var afhjúpaður minnisvarði um Stephan G. Stephansson skáld en um eitt hundrað ár voru þá frá fæðingu hans.
- 1970 - Þingeyskir bændur fóru í mótmælaför frá Húsavík til Akureyrar og mótmæltu virkjun í Laxá. Rúmum mánuði síðar var stífla í ánni sprengd.
- 1974 - Varðskipið Þór tók breska togarann C.S. Forrester að ólöglegum veiðum og varð að elta hann 120 mílur á haf út og skjóta á hann 8 fallbyssuskotum áður en hann stöðvaði, þá orðinn lekur. Skipstjórinn var dæmdur í 4 ára fangelsi.
- 1980 - Sumarólympíuleikar voru settir í Moskvu.
- 1981 - Á Stóru-Giljá í Húnavatnssýslu var afhjúpaður minnisvarði um Þorvald víðförla og Friðrik biskup af Saxlandi.
- 1985 - Tvær stíflur sem héldu námuvinnslufor í Val di Stava á Ítalíu brustu með þeim afleiðingum að 268 létust.
- 1989 - Á Kolbeinsey, 74 km norðvestur af Grímsey, var hafin bygging þyrlupalls með áfestum ratsjárspeglum og jarðskjálftamælum.
- 1989 - Pólska þingið kaus Wojciech Jaruzelski sem forseta landsins.
- 1989 - United Airlines flug 232 hrapaði við Sioux City í Iowa með þeim afleiðingum að 112 létust, en 184 björguðust.
- 1992 - Ítalski dómarinn Paolo Borsellino lést ásamt fimm fylgdarmönnum i bílasprengju í Palermó.
- 1993 - Bill Clinton kynnti stefnu sína varðandi samkynhneigða í Bandaríkjaher undir yfirskriftinni „ekki spyrja, ekki segja frá“.
- 1996 - Sumarólympíuleikar voru settir í Atlanta.
- 1996 - Forseti Bosníuserba, Radovan Karadžić, sagði af sér vegna ásakana um stríðsglæpi.
- 2001 - Breski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Archer var dæmdur í 4 ára fangelsi fyrir að bera ljúgvitni.
- 2007 - Prathiba Patil var kosin fyrsti kvenforseti Indlands.
- 2007 - Kauphöllin í Osló náði hámarki, 524,37 punktum.
- 2019 - Íranski byltingarvörðurinn hertók breska olíuflutningaskipið Stena Impero í Persaflóa.
- 2020 - Flóð í Brahmaputra ollu dauða 189 manns og eyðilögðu heimili 4 milljóna í Indlandi og Nepal.
- 2021 - Jeff Bezos, bróðir hans, Mark, Oliver Daemen (18 ára) og Wally Funk (82 ára), fóru út í geim á vegum Blue Origin með New Shepard-eldflaug. Daemen og Funk urðu þar með yngsta og elsta manneskjan sem fer út í geim.
- 2021 - Pedro Castillo tók við embætti forseta Perú.
- 2022 - Hitabylgjurnar í Evrópu 2022 hófust og urðu yfir 50.000 að bana áður en yfir lauk í ágúst.
Fædd
breyta- 1670 - Richard Leveridge, enskur söngvari og tónskáld (d. 1758).
- 1698 - Johann Jakob Bodmer, svissneskur rithöfundur og gagnrýnandi (d. 1783).
- 1814 - Samuel Colt, bandarískur uppfinningamaður (d. 1862).
- 1834 - Edgar Degas, franskur listmálari (d. 1917).
- 1855 - Hannes Hafliðason, skipstjóri og bæjarfulltrúi í Reykjavík (d. 1931).
- 1890 – Georg 2., konungur Grikklands (d. 1947).
- 1894 - Guðmundur B. Hersir, íslenskur bakari og knattspyrnumaður (d. 1971).
- 1921 - Rosalyn Yalow, bandarískur Nóbelsverðlaunahafi í lífeðlis- og læknisfræði (d. 2011).
- 1922 - George McGovern, bandarískur stjórnmálamaður (d. 2012).
- 1932 - Erró, íslenskur myndlistarmaður.
- 1934 - Hafsteinn Austmann, íslenskur myndlistarmaður.
- 1936 - Birgir Ísleifur Gunnarsson, íslenskur stjórnmálamaður, borgarstjóri og seðlabankastjóri (d. 2019).
- 1947 - Brian May, enskur tónlistarmaður.
- 1947 - Salman Rushdie, indverskur rithöfundur.
- 1958 - Kazushi Kimura, japanskur knattspyrnumaður.
- 1965 - Hailemariam Desalegn, eþíópískur stjórnmálamaður.
- 1970 - Nicola Sturgeon, skosk stjórnmálakona.
- 1971 - Naoki Soma, japanskur knattspyrnumaður.
- 1971 - Vítalíj Klitsjkó, úkraínskur stjórnmálamaður og hnefaleikakappi.
- 1972 - Ebbe Sand, danskur knattspyrnumaður.
- 1976 - Eric Prydz, sænskur plötusnúður.
- 1981 - Didz Hammond, enskur bassaleikari.
- 1982 - Jared Padalecki, bandarískur leikari.
- 1990 - Aron Pálmarsson, íslenskur handknattleiksmaður.
Dáin
breyta- 514 - Symmakus páfi.
- 1255 - Eyjólfur ofsi Þorsteinsson, foringi brennumanna í Flugumýrarbrennu.
- 1374 - Francesco Petrarca, ítalskt skáld og fræðimaður (f. 1304).
- 1415 - Filippa af Lancaster, Portúgalsdrottning, kona Jóhanns 1. (f. 1359).
- 1682 - Jóhannes 1. Eþíópíukeisari.
- 1810 - Louise af Mecklenburg-Strelitz, drottning Prússlands (f. 1776).
- 1814 - Matthew Flinders, enskur landkönnuður (f. 1774).
- 1912 - Jóhann Bessason, íslenskur smiður og bóndi (f. 1839).
- 1917 - Magnús Þórarinsson, íslenskur tóvinnumaður (f. 1847).
- 1965 - Syngman Rhee, suðurkóreskur stjórnmálamaður (f. 1875).
- 1968 - Jónas Jónsson frá Hriflu, íslenskur stjórnmálamaður (f. 1855).
- 1984 - Faina Ranevskaya, rússnesk leikkona (f. 1896).
- 2010 - David Warren, ástralskur vísindamaður (f. 1925).
- 2014 - James Garner, bandarískur leikari (f. 1928).