24. júlí
dagsetning
Jún – Júlí – Ágú | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | |||
2024 Allir dagar |
24. júlí er 205. dagur ársins (206. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 160 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1216 - Honóríus 3. var kjörinn páfi.
- 1245 - Uppreisn var gerð gegn Sancho 2. konungi í Portúgal, sem flúði land. Hann var þó ekki settur formlega af fyrr en í desember 1247.
- 1567 - María Skotadrottning var neydd til að afsala sér völdum í hendur sonar síns, Jakobs 6.
- 1599 - Sigmundur 3. Svíakonungur var settur af og föðurbróðir hans, Karl hertogi, varð ríkisstjóri.
- 1684 - Robert de LaSalle lagði upp frá Frakklandi með stóran leiðangur í þeim tilgangi að koma upp franskri landnemabyggð við ósa Mississippifljóts.
- 1896 - Fjórar nunnur komu til Íslands og settust að í Reykjavík til þess að hjúkra sjúkum. Þá höfðu ekki verið nunnur á landinu síðan fyrir siðaskipti.
- 1908 - Abdúl Hamid 2. Tyrkjasoldán lét undan þrýstingi Ungtyrkja og endurreisti þingbundna konungsstjórn í Tyrkjaveldi.
- 1924 - Alþjóða skáksambandið var stofnað í París.
- 1948 - Syngman Rhee tók við embætti sem fyrsti forseti Suður-Kóreu.
- 1956 - Ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks settist að völdum og sat í tvö ár undir forsæti Hermanns Jónassonar. Menntamálaráðherra varð Gylfi Þ. Gíslason og hélt hann því embætti í öllum ríkisstjórnum í 15 ár.
- 1961 - Júrí Gagarín, fyrsti geimfarinn, kom við á Keflavíkurflugvelli á leið sinni til Kúbu, skömmu eftir að hann fór í fyrstu geimferðina.
- 1975 - Filippseyjar og Taíland lýstu því yfir að Suðaustur-Asíubandalagið (SEATO) yrði lagt niður.
- 1980 - Ríkisstjórn Íslands skrifaði undir Alþjóðlegan samning Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum. Hann tók þó ekki gildi fyrr en 18. júní 1985.
- 1982 - Á Skeiðarársandi fannst skipsflak, sem í fyrstu var talið vera flak gullskipsins Het Wapen van Amsterdam, sem fórst þar árið 1667. Í ljós kom að flakið var af þýskum togara frá 1903.
- 1985 - Bandaríska teiknimyndin Svarti ketillinn var frumsýnd.
- 1990 - Fyrra Persaflóastríðið: Íraskar hersveitir söfnuðust saman við Kúveit.
- 1996 - 56 létust þegar sprengja sprakk í lest utan við Kólombó á Srí Lanka.
- 1998 - Bandaríska kvikmyndin Björgun óbreytts Ryans var frumsýnd.
- 2001 - Tamíltígrar réðust á Bandaranaike-flugvöll.
- 2001 - Simeon Saxe-Coburg-Gotha, síðasti keisari Búlgaríu, varð 48. forsætisráðherra landsins.
- 2002 - Alfred Moisiu varð forseti Albaníu.
- 2003 - Ástralir hófu RAMSI-aðgerðina á Salómonseyjum eftir að stjórn eyjanna hafði óskað eftir alþjóðlegri aðstoð vegna innanlandsófriðar.
- 2007 - Bamir Topi varð forseti Albaníu.
- 2007 - HIV-réttarhöldin í Líbýu: Fimm búlgörskum hjúkrunarkonum var sleppt eftir 8 og hálfs árs fangelsisvist í Líbýu.
- 2008 - Bandaríska kvikmyndin The Dark Knight var frumsýnd.
- 2010 - 21 lést í troðningi á hátíðinni LoveParade í Duisburg í Þýskalandi.
- 2013 - Járnbrautarslysið í Santiago di Compostela: 79 fórust þegar lest fór út af sporinu á járnbrautarbrú á Spáni.
- 2014 - Farþegaþota Air Algérie, með 116 manns innanborðs, fórst í Malí.
- 2015 - Tyrkland hóf sprengjuárásir á Verkamannaflokk Kúrda og Íslamska ríkið.
- 2017 - 35 létust í sjálfsmorðssprengjuárás í Kabúl, Afganistan.
- 2019 – Boris Johnson tók við embætti forsætisráðherra Bretlands.
- 2022 - Danski hjólreiðamaðurinn Jonas Vingegaard sigraði Tour de France 2022.
Fædd
breyta- 1561 - María af Pfalz, fyrsta kona Karls 9. Svíakonungs (d. 1589).
- 1716 - Bolle Willum Luxdorph, danskur sagnfræðingur, ljóðskáld og embættismaður (d. 1788).
- 1783 - Símon Bólívar, frelsishetja Suður-Ameríku (d. 1830).
- 1802 - Alexandre Dumas eldri, franskur rithöfundur (d. 1870).
- 1857 - Henrik Pontoppidan, danskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1943).
- 1860 - Alfons Mucha, tékkneskur myndlistarmaður (d. 1939).
- 1895 - Robert Graves, enskt ljóðskáld (d. 1985).
- 1897 - Amelia Earhart, bandarískur flugmaður (d. 1937).
- 1898 - Kjartan Þorvarðsson, íslenskur knattspyrnumaður og íþróttaforkólfur (d. 1936).
- 1902 - Sigurður S. Thoroddsen, íslenskur verkfræðingur, stjórnmálamaður og knattspyrnumaður (d. 1983).
- 1927 - Einar Vigfússon, íslenskur sellóleikari (d. 1973).
- 1931 - Helga Bachmann, íslensk leikkona (d. 2011).
- 1949 - Michael Richards, bandarískur leikari.
- 1952 - Carsten Jensen, danskur rithöfundur.
- 1957 - Shavkat Mirziyoyev, forseti Úsbekistans.
- 1957 - Bamir Topi, forseti Albaníu.
- 1962 - Sigríður Beinteinsdóttir, íslensk söngkona.
- 1963 - Karl Malone, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1966 - Sigurjón Þ. Árnason, íslenskur bankastjóri.
- 1968 - Kristin Chenoweth, bandarísk leikkona.
- 1969 - Jennifer López, bandarísk leikkona og söngkona.
- 1974 - Eugene Mirman, bandarískur leikari.
- 1974 - Atsuhiro Miura, japanskur knattspyrnumaður.
- 1975 - Eric Szmanda, bandarískur leikari.
- 1979 - Birkir Jón Jónsson, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1981 - Nayib Bukele, forseti El Salvador.
- 1985 - Dóra María Lárusdóttir, íslensk knattspyrnukona.
- 2000 - Viktor Gísli Hallgrímsson, íslenskur handboltamaður.
Dáin
breyta- 1568 - Karl prins af Astúríu, krónprins Spánar (f. 1545).
- 1679 - Jón Rúgmann, íslenskur fornfræðingur (f. 1636).
- 1742 - Nikulás Magnússon, íslenskur sýslumaður (f. 1700).
- 1862 - Martin Van Buren, Bandaríkjaforseti (f. 1782).
- 1927 - Ryūnosuke Akutagawa, japanskur rithöfundur (f. 1892).
- 1945 - Baldvin Björnsson, íslenskur myndlistarmaður og gullsmiður (f. 1879).
- 1980 - Peter Sellers, breskur leikari (f. 1925).
- 1991 - Isaac Bashevis Singer, pólskur rithöfundur og Nóbelsverðlaunahafi (f. 1904).
- 2012- John Atta Mills, ganverskur stjórnmálamaður (f. 1944).