6. ágúst
dagsetning
Júl – Ágúst – Sep | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | ||||
4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 |
11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 |
18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 |
25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
2024 Allir dagar |
6. ágúst er 218. dagur ársins (219. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 147 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
breyta- 1218 - Ormur Jónsson Breiðbælingur og Jón sonur hans voru drepnir af norskum kaupmönnum í Vestmannaeyjum.
- 1228 - Þorvaldsbrenna: Synir Hrafns Sveinbjarnarsonar fóru að Þorvaldi Snorrasyni, goðorðsmanni frá Vatnsfirði, og brenndu hann inni.
- 1414 - Jóhanna 2. varð drottning Napólí eftir lát Ladisláss bróður síns.
- 1538 - Borgin Bogotá í Kólumbíu var stofnuð.
- 1623 - Maffeo Barberini var kjörinn Úrbanus 8. páfi.
- 1661 - Portúgal og Holland gerðu með sér Haagsáttmálann þar sem Portúgal fékk formlega viðurkennd yfirráð sín yfir Nýja Hollandi í Brasilíu.
- 1759 - Björn Halldórsson í Sauðlauksdal fékk sendar útsæðiskartöflur frá Kaupmannahöfn. Hann setti þær niður í ker og fékk smávegis undan þeim seint um haustið en þó er jafnan miðað við að hann hafi hafið kartöfluræktun 1760. Þá hafði hann fengið nýtt útsæði.
- 1806 - Hið Heilaga rómverska ríki var formlega leyst upp þegar síðasti keisarinn, Frans 2., sagði af sér. Austurríska keisaradæmið og Þýska bandalagið tóku við.
- 1809 - Í Klúbbnum í Reykjavík (þar sem síðar var hús Hjálpræðishersins) efndi konungurinn, Jörgen Jörgensen, til dansleiks.
- 1824 - Simón Bolívar sigraði spænskt riddaralið í orrustunni um Junín.
- 1825 - Bólivía lýsti yfir sjálfstæði frá Spáni.
- 1907 - Lárus Rist fimleikakennari vann það afrek að synda yfir Oddeyrarál. Hann lagði af stað alklæddur og í sjóklæðum og vaðstígvélum en tíndi fötin af sér á leiðinni. Markmið hans var að sýna fram á að sjómenn hefðu gagn af sundkunnáttu.
- 1933 - Steinn Steinarr skáld og fjórir aðrir hlutu dóm fyrir að skera niður fána við hús þýska vararæðismannsins á Siglufirði.
- 1937 - Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis var stofnað á stofnfundi þar sem mættir voru 93 fulltrúar frá Pöntunarfélagi verkamanna í Reykjavík, Kaupfélagi Reykjavíkur, Pöntunarfélagi Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnafirði og Pöntunarfélagi Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, en félög þessi ákváðu á þessum degi að sameinast í eitt félag.
- 1945 - Kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki: Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á japönsku borgina Hiroshima og drápu með því allt að 180.000 manns.
- 1960 - Steingrímsstöð, 26 Mw virkjun í Soginu, var tekin í notkun við hátíðlega athöfn.
- 1962 - Jamaíka lýsti yfir sjálfstæði frá Sambandsríki Vestur-Indía.
- 1965 - Hljómplata Bítlanna, Help!, kom út í Bretlandi.
- 1974 - Gerald Ford tók við embætti Bandaríkjaforseta í kjölfar afsagnar Nixons.
- 1983 - Friðarganga á vegum herstöðvaandstæðinga var gengin frá hliði herstöðvarinnar til Reykjavíkur.
- 1985 - Afhjúpaður var minnisvarði um Sigfús Sigfússon þjóðsagnasafnara í landi Miðhúsa á Fljótsdalshéraði, en þar var hann fæddur.
- 1990 - Forseti Pakistan Ghulam Ishaq Khan setti forsætisráðherrann, Benazir Bhutto, af og sakaði hana um spillingu
- 1990 - Fyrra Persaflóastríðið: Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna setti viðskiptabanna á Írak.
- 1991 - Tim Berners-Lee sagði frá Veraldarvefnum á fréttahópnum alt.hypertext. Fyrsta vefsíðan, „info.cern.ch“, var búin til.
- 1996 - Skáldsagan Game of Thrones, fyrsta sagan í bókaröð George R.R. Martin, kom út í Bandaríkjunum.
- 1996 - NASA sagði frá því að loftsteinninn ALH 84001 gæti innihaldið leifar af frumstæðum lífverum.
- 1997 - Microsoft keypti hlutabréf í Apple Computer að andvirði 150 milljóna dala til að aðstoða þá í fjárhagsvandræðum.
- 1997 - Korean Air flug 801 fórst við Gvam. 228 létust.
- 2001 - Eldsvoðinn í Erwadi: 28 geðsjúklingar sem voru hlekkjaðir fastir létu lífið þegar eldur kom upp í trúarstofnun í Tamil Nadu.
- 2008 - Sidi Ould Cheikh Abdallahi var steypt af stóli í Máritaníu.
- 2011 - Óeirðirnar í London 2011 brutust út og leiddu til 5 dauðsfalla.
- 2012 - Marsbíllinn Curiosity lenti heilu og höldnu á Mars.
- 2015 - Súesskurðurinn var tvöfaldaður á 35 km kafla sem stytti siglingatímann umtalsvert.
- 2015 - Andrzej Duda tók við embætti forseta Póllands.
- 2016 - Yfir 20 fórust í flóðum í Makedóníu.
Fædd
breyta- 1619 - Barbara Strozzi, ítölsk söngkona og tónskáld (d. 1677).
- 1638 - Nicolas Malebranche, franskur heimspekingur (d. 1715).
- 1697 - Karl 7. keisari hins Heilaga rómverska ríkis (d. 1745).
- 1809 - Alfred Tennyson, enskt skáld (d. 1892).
- 1854 - William Gershom Collingwood, enskur rithöfundur og myndlistarmaður (d. 1932).
- 1860 - Sólon Guðmundsson, verkamaður og skáld (d. 1931).
- 1873 - Magnús Hj. Magnússon, skáld og fræðimaður (d. 1916).
- 1881 - Alexander Fleming, skoskur líf- og lyfjafræðingur (d. 1955).
- 1881 - Hulda, íslenskt skáld (d. 1946).
- 1911 - Lucille Ball, bandarisk leikkona (d. 1989).
- 1917 - Robert Mitchum, bandariskur leikari (d. 1997).
- 1928 - Andy Warhol, bandarískur listamaður (d. 1987).
- 1931 - Matthías Á. Mathiesen, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1937 - Dagur Sigurðarson, íslenskt skáld (d. 1994).
- 1947 - Mohammad Najibullah, forseti Afganistans. (d. 1996).
- 1952 - Chuck Russell, bandarískur leikstjóri.
- 1963 - Kevin Mitnick, bandarískur tölvuþrjótur.
- 1965 - David Robinson, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1970 - M. Night Shyamalan, indversk-bandarískur leikstjóri.
- 1970 - Yutaka Akita, japanskur knattspyrnumaður.
- 1981 - Linda Maria Baros, franskt skáld.
- 1983 - Robin van Persie, hollenskur knattspyrnuleikari.
- 1987 - Saga Garðarsdóttir, íslensk leikkona.
Dáin
breyta- 1201 - Brandur Sæmundsson, Hólabiskup (f. um 1120).
- 1218 - Ormur Jónsson Breiðbælingur, íslenskur höfðingi.
- 1221 - Heilagur Dóminíkus, stofnandi Dóminíkanareglunnar (f. 1170).
- 1228 - Þorvaldur Snorrason Vatnsfirðingur.
- 1458 - Kalixtus 3. páfi (f. 1378).
- 1637 - Ben Jonson, enskt leikskáld (f. 1572).
- 1639 - Hans van Steenwinckel, flæmskur arkitekt (f. 1587).
- 1642 - Ragnheiður Eggertsdóttir, húsfreyja í Saurbæ á Rauðasandi (f. 1550).
- 1660 - Diego Velásquez, spænskur listmálari (f. 1599).
- 1694 - Antoine Arnauld, franskur guðfræðingur, heimspekingur og stærðfræðingur (f. 1612).
- 1746 - Kristján 6., konungur Íslands og Danmerkur frá 1730 (f. 1699).
- 1782 - Sveinn Sölvason, íslenskur lögmaður og skáld (f. 1722).
- 1935 - Sigfús Sigfússon, íslenskur þjóðsagnasafnari (f. 1855).
- 1973 - Fulgencio Batista, forseti Kúbu (f. 1901).
- 1978 - Páll 6. páfi (f. 1897).
- 1994 - Giovanni Spadolini, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1925).
- 1994 - Domenico Modugno, ítalskur söngvari og lagahöfundur (f. 1928).
- 2005 - Andri Ísaksson, íslenskur prófessor í uppeldisfræði (f. 1939).
- 2009 - John Hughes, bandarískur leikstjóri og handritshöfundur (f. 1950)