Gambía
Gambía (mandinka: Kambiya ߞߊߡߓߌߦߊ; wolof: Gámbi, fula: Gammbi) er land í Vestur-Afríku. Landið liggur að Atlantshafi í vestri en er annars umlukið Senegal úr öðrum áttum. Gambía er minnsta landið á meginlandi Afríku. Það nær aðeins yfir bakka Gambíufljóts og er ekki nema 48,2 km á breidd þar sem það er breiðast. Landið er rúmlega 10.000 ferkílómetrar að stærð og þar búa tæplega 2 milljónir. Höfuðborgin er Banjul en stærstu borgirnar eru Serekunda og Brikama.
Republic of The Gambia | |
Fáni | Skjaldarmerki |
Kjörorð: Progress, Peace, Prosperity (enska: Framþróun, Friður, Farsæld) | |
Þjóðsöngur: For The Gambia Our Homeland | |
Höfuðborg | Banjul |
Opinbert tungumál | enska |
Stjórnarfar | Lýðveldi
|
Forseti | Adama Barrow |
Sjálfstæði | |
• frá Bretlandi | 18. febrúar 1965 |
Flatarmál • Samtals • Vatn (%) |
159. sæti 10.689 km² 11,5 |
Mannfjöldi • Samtals (2020) • Þéttleiki byggðar |
144. sæti 1.857.181 176,1/km² |
VLF (KMJ) | áætl. 2020 |
• Samtals | 5,420 millj. dala (167. sæti) |
• Á mann | 2.240 dalir (169. sæti) |
VÞL (2019) | 0.496 (172. sæti) |
Gjaldmiðill | dalasi |
Tímabelti | UTC |
Þjóðarlén | .gm |
Landsnúmer | +220 |
Gambía var upphaflega portúgölsk nýlenda en Bretar hófu verslun þar snemma á 17. öld. Þrælaverslun við Evrópumenn varð grunnurinn að stofnun nýlendu við ósa Gambíufljóts. Bretar lögðu síðan landið undir sig, ásamt Senegal, í Sjö ára stríðinu. Árið 1783 var Senegal skilað til Frakka en Bretar héldu yfirráðum yfir Gambíufljóti. Gambía varð sjálfstæð nýlenda árið 1888. Landið fékk heimastjórn árið 1962 og fullt sjálfstæði árið 1965 og varð hluti af Breska samveldinu. Frá sjálfstæði hefur Gambía aðeins haft þrjá forseta. Dawda Kairaba Jawara varð forsætisráðherra 1962 og síðan forseti þegar landið varð lýðveldi 1970. Hann stóðst valdaránstilraun 1981 með aðstoð senegalska hersins. Árið 1994 var honum svo steypt af stóli af herforingjaráði og Yahya Jammeh ofursti komst til valda. Hann náði kjöri í fyrstu kosningunum sem haldnar voru eftir valdaránið árið 1997. Árið 2013 sagði landið sig úr Breska samveldinu. Núverandi forseti, Adama Barrow, er fyrsti lýðræðislega kjörni forseti landsins. Hann hefur hafið ferli til að endurheimta stöðu landsins hjá Breska samveldinu.
Efnahagslíf Gambíu byggist á landbúnaði, fiskveiðum og ferðaþjónustu. Árið 2015 bjó nær helmingur landsmanna við fátækt. Í dreifbýli búa allt að 70% íbúa við fátækt.[1]
Heiti
breytaHeitið Gambía er dregið af mandinkaorðinu Kambra eða Kambaa sem vísar til Gambíufljóts (önnur skýring er að það vísi til Sereragripsins Gamba, sem er sérstakt flöskuker sem er barið þegar öldungur deyr.[2]).[3] Þegar landið fékk sjálfstæði árið 1965 var heiti landsins skrifað með ákveðnum greini, the Gambia. Eftir stofnun lýðveldis árið 1970 varð formlegt heiti landsins „Lýðveldið Gambía“ (enska: Republic of the Gambia).[4] Ríkisstjórn Yahya Jammeh breytti formlega heitinu í „Íslamska lýðveldið Gambía“ (enska: Islamic Republic of the Gambia) í desember 2015.[5] Þann 29. janúar breytti forsetinn Adama Barrow nafninu aftur í „Lýðveldið Gambía“ (enska: Republic of the Gambia).[6][7]
Gambía er þannig eitt af fáum löndum heims þar sem ákveðni greinirinn er notaður í ensku heiti þess, nema þar sem heitið er í fleirtölu (the Philippines) eða stjórnarfar er hluti af heitinu (the United Kingdom). Greinirinn er notaður í opinberum skjölum af stjórn landsins og hjá alþjóðastofnunum. Upphafleg ástæða fyrir notkun greinisins er að landið dró nafn sitt af fljótinu. Skömmu áður en landið fékk sjálfstæði 1964, ritaði forsætisráðherrann Dawda Jawara bresku fastanefndinni um landfræðiheiti og óskaði eftir því að greinirinn yrði áfram notaður, að hluta til að koma í veg fyrir rugling við Sambíu, sem varð sjálfstæð um svipað leyti.[8] Nú til dags notast enskumælandi lönd ýmist við Gambia eða the Gambia.
Stjórnmál
breytaStjórnsýslueiningar
breytaGambía skiptist í átta sveitarstjórnarsvæði, þar á meðal höfuðborgina, Banjul, sem er skilgreind sem borg. Skiptingin var búin til af Sjálfstæða kjördæmaráðinu í samræmi við grein 192 í Stjórnarskrá Gambíu.[9]
Nafn | Stærð (km2) | Manntal 2003 | Manntal 2013 2013 (bráðabirgða) |
Höfuðstaður | Fjöldi umdæma |
---|---|---|---|---|---|
Banjul (höfuðborg) | 12,2 | 35.061 | 31.301 | Banjul | 3 |
Kanifing | 75,6 | 322.735 | 382.096 | Kanifing | 1 |
Brikama (áður Western) |
1.764,3 | 389.594 | 699.704 | Brikama | 9 |
Mansa Konko (áður Lower River) |
1.628 | 72.167 | 82.381 | Mansa Konko | 6 |
Kerewan (áður North Bank) |
2.255,5 | 172.835 | 221.054 | Kerewan | 7 |
Kuntaur (áður vesturhluti Central River Division) |
1.466,5 | 78.491 | 99.108 | Kuntaur | 5 |
Janjanbureh (áður austurhluti Central River Division) |
1.427,8 | 107.212 | 126.910 | Janjanbureh | 5 |
Basse (áður Upper River) |
2.069,5 | 182.586 | 239.916 | Basse Santa Su | 7 |
Alls | 10.689 | 1.360.681 | 1.882.450 | Banjul | 43 |
Sveitarstjórnarsvæðin skiptast svo aftur (2013) í umdæmi. Af þeim eru Kanifing og Kombo Saint Mary (með höfuðstaðinn Brikama) eru í reynd hluti af stórborgarsvæði Banjul.[10]
Tilvísanir
breyta- ↑ „The Gambia overview“. World Bank. Afrit af uppruna á 5. júlí 2018. Sótt 5. júlí 2018.
- ↑ Allen Meagher, Andrew Samuel, Baba Ceesay, National Council for the Arts and Culture (Gambia), Historic Sites of The Gambia: Ada Dinkiralu (Mandinka), Bereb-I-Chosan (Wolof), Tarica Tawal (Fula), Nannin (Jola), Soninke Ada (Serehuli), I-Mofan Chosan (Serer) : an Official Guide to the Monuments and Sites of the Gambia, National Council for the Arts and Culture, 1998, pp. 1, 24.
- ↑ Godfrey Mwakikagile, The Gambia and Its People: Ethnic Identities and Cultural Integration in Africa, New Africa Press, 2010, ISBN 9789987160235, p. 141 [1]
- ↑ „Constitution of the Republic of the Gambia“ (PDF). 1996. Afrit (PDF) af uppruna á 4. febrúar 2016. Sótt 29. janúar 2016.
- ↑ „La Gambie s'autoproclame "État islamique"“ (franska). Europe 1. 13. desember 2015. Afrit af uppruna á 14. desember 2015. Sótt 14. desember 2015.
- ↑ Adegun, Aanu (29. janúar 2017). „Adama Barrow removes 'Islamic' title from Gambia's name“. Naij (bandarísk enska). Afrit af uppruna á 29. janúar 2017. Sótt 31. janúar 2017.
- ↑ „The Gambia: President Adama Barrow pledges reforms“. Al Jazeera. 28. janúar 2017. Afrit af uppruna á 31. janúar 2017. Sótt 31. janúar 2017.
- ↑ Alfa Shaban, Abdur Rahman (19. janúar 2017). „Why Africa's 'smiling coast' is officially referred to as 'The' Gambia“. Africa News. Afrit af upprunalegu geymt þann 11. apríl 2021. Sótt 28. nóvember 2020.
- ↑ „The Gambia“. The World Factbook. Central Intelligence Agency. Sótt 30. maí 2007.
- ↑ Law, Gwillim (19. apríl 2006). „Divisions of Gambia“. Administrative Divisions of Countries ("Statoids"). Afrit af uppruna á 4. ágúst 2011. Sótt 29. september 2006.