[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Meistaradeild Evrópu

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
(Endurbeint frá UEFA Champions League)
UEFA Champions League
Stofnuð1955; fyrir 69 árum (1955)
(endurnefnd 1992)
SvæðiEvrópa (UEFA)
Fjöldi liða32 (riðlakeppni)
80 (alls)
Undankeppni fyrirUEFA Super Cup
FIFA Club World Cup
Tengdar keppnirUEFA Europa League (2. stig)
UEFA Europa Conference League (3. stig)
Núverandi meistariFáni Spánar Real Madrid (15. titill)
Sigursælasta félagFáni Spánar Real Madrid (15 titlar)
VefsíðaOpinber vefsíða
Lönd sem hafa tekið þátt í riðlakeppni: Grænt. Lið sem ekki hafa tekið þátt í henni: Blátt.

Meistaradeild Evrópu (enska: UEFA Champions League) er árleg keppni í knattspyrnu. Keppnina heldur Knattspyrnusamband Evrópu fyrir öll bestu lið Evrópu. Sigurvegarar keppninnar hljóta Evrópumeistaratitilinn sem eru mjög virt verðlaun í knattspyrnuheiminum. Sigurvegarinn í keppninni fær þátttökurétt í Evrópska ofurbikarnum, sem og í heimsmeistarakeppni félagsliða. Meistaradeildinni var hleypt af stokkunum 1955 og hét þá Evrópukeppni félagsliða, en 1992 var keppninni breytt í Meistaradeildina. Sigursælasta lið keppninnar er Real Madrid sem hefur unnið fimmtán sinnum.

Bikar Meistaradeildarinnar

Keppni evrópskra knattspyrnuliða var ekki ný af nálinni. 1927 hófst Mitropabikarinn, en það var félagskeppni liða frá Austurríki, Ungverjalandi, Júgóslavíu, Tékkóslóvakíu, Ítalíu, Sviss og Rúmeníu. Hún lagði hins vegar upp laupana við upphaf heimstyrjaldarinnar síðari. Eftir stríð var önnur slík keppni í gangi, miklu minni þó, og hét hún Coupe Latine. Í henni kepptu meistaralið frá Ítalíu, Frakklandi, Spáni og Portúgal. Hugmyndir um nýja Evrópukeppni með meistaraliðum frá sem flestum löndum í Evrópu fæddust snemma á sjötta áratugnum með Gabriel Hanot, íþróttafréttamanni L‘Équipe og fyrrverandi frönskum landsliðsmanni. Skipulagning Hanots var gerð opinber í blaðinu í desember 1954 og hófst keppnin sjálf á haustmánuðum árið eftir. 16 lið voru þátttakendur í fyrstu keppninni. Ekki sáu þó öll lið sér fært að taka þátt. T.d. meinaði Enska knattspyrnusambandið Chelsea þátttöku og var þá Gwardia Varsjá sent í staðinn. Sigurvegari var Real Madrid sem sigraði franska liðið Stade Reims í úrslitaleik 4-3. Real Madrid vann keppnina reyndar 5 fyrstu skiptin, árangur sem ekkert annað lið hefur tekist að gera. Suðurevrópsk lið (frá Spáni, Ítalíu og Portúgal) sigruðu keppnina allt til 1966, en 1967 tókst Glasgow Celtic að sigra, fyrst breskra liða. Aðeins tvisvar hefur liði tekist að sigra keppnina þrisvar í röð (eftir hina stórkostlegu byrjun Real Madrid): Ajax 1971-73 og Bayern München 1974-76. Mesta sigurganga liða frá einu landi var 1977-82 en þá sigruðu Liverpool, Nottingham Forest og Aston Villa til skiptis sex sinnum í röð. Einn sorglegasti viðburður keppninnar var úrslitaleikurinn 1985 á Heyselvellinum í Brussel milli Juventus og Liverpool en þá hrundi veggur og létust við það 39 manns. Afleiðingarnar voru þær að ensk lið voru útilokuð frá keppninni í fimm ár (Liverpool í sjö ár). Frá byrjun til ársins 1991 var fyrirkomulag keppninnar útsláttur, þ.e. heimaleikur og útileikur. Á leiktíðinni 1991-92 var í fyrsta sinn komið upp riðlum, þ.e. í átta liða úrslitum var liðunum komið fyrir í tveimur riðlum. Sigurlið riðlanna komust í úrslitaleikinn. 1992 var keppninni breytt í Meistaradeild Evrópu. Fyrsta árið (92-93) var fyrirkomulag keppninnar eins og á síðasta ári, þ.e. útsláttur og tveir riðlar. En 1994 var í fyrsta sinn komið upp riðlakeppni strax í upphafi. 16 lið voru sett í fjóra riðla. Efstu tvö liðin í riðlunum komust í átta liða úrslit. Í leiktíðunum 96-97 og 97-98 var liðunum fjölgað í 24 og léku þau í 6 riðlum. Efstu liðin í riðlunum og þau bestu sem lentu í öðru sæti komust í átta liða úrslit. Leiktíðina 1999-2000 var keppninni enn breytt. Að þessu sinni fengu 32 lið þátttökurétt og voru þau skipuð í átta riðla. Tvö efstu lið riðlanna mynduðu svo fjóra nýja riðla. Tvö efstu liðin þar komust í átta liða úrslit. Liðið í þriðja sæti fer í Evrópudeild UEFA en liðið í neðsta sæti fellur úr leik. Milliriðlarnir voru þó fljótt afnumdir, þannig að í dag hefst útsláttarkeppnin strax að lokinni fyrstu riðlakeppninni. Tólf af liðunum 32 voru meistarar í sínum eigin löndum en þar að auki sex lið sem lentu í 2. sæti. Afgangurinn, 10 lið, vinna sér þátttökurétt með forkeppni.

Úrslitaleikir

[breyta | breyta frumkóða]
Ár Sigurvegarar Staða 2. sæti Völlur
2023/2024 Fáni Spánar Real Madrid 2-0 Fáni Þýskalands Borussia Dortmund Wembley
London, England
2022/2023
Nánar
Fáni Englands Manchester City 1-0 Fáni Ítalíu Inter Mílanó Atatürk-ólympíuvöllurinn
Istanbúl, Tyrkland
2021/2022
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 1-0 Fáni Englands Liverpool FC Stade de France,
París, Frakkland
2020/2021
Nánar
Fáni Englands Chelsea FC 1-0 Fáni Englands Manchester City Estádio do Dragao,
Porto, Portúgal
2019/2020
Nánar
Fáni Þýskalands Bayern München 1-0 Fáni Frakklands Paris Saint-Germain Estádio da Luz,
Lissabon, Portúgal
2018/2019
Nánar
Fáni Englands Liverpool FC 2-0 Fáni Englands Tottenham Hotspur Wanda Metropolitano,
Madríd, Spánn
2017/2018
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 3-1 Fáni Englands Liverpool FC NSC Olimpiyskiy Stadium,
Kiev, Úkraína
2016/2017
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 4-1 Fáni Ítalíu Juventus Millenium Stadium,
Cardiff, Wales
2015/2016
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 1-1, 5-3 (v.) Fáni Spánar Atlético Madrid San Siro,
Mílanó, Ítalía
2014/2015
Nánar
Fáni Spánar FC Barcelona 3-1 Fáni Ítalíu Juventus Olympiastadion ,
Berlín, Þýskaland
2013/14
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 4-1 Fáni Spánar Atlético Madrid Estádio da Luz ,
Lissabon, Portúgal
2012/13
Nánar
Fáni Þýskalands Bayern München 2-1 Fáni Þýskalands Borussia Dortmund Wembley ,
London, England
2011/12
Nánar
Fáni Englands Chelsea 1-1, 6-5 (v.) Fáni Þýskalands Bayern München Wembley ,
London, England
2010/11
Nánar
Fáni Spánar FC Barcelona 3-1 Fáni Englands Manchester United Wembley ,
London, England
2009/10
Nánar
Fáni Ítalíu Inter Mílanó 2-0 Fáni Þýskalands Bayern München Santiago Bernabeu,
Madríd, Spánn
2008/09
Nánar
Fáni Spánar FC Barcelona 2-0 Fáni Englands Manchester United Stadio Olimpico,
Róm, Ítalía
2007/08
Nánar
Fáni Englands Manchester United 1-1, 6-5 (v.) Fáni Englands Chelsea Luzhniki Stadium,
Moskva, Rússland
2006/07
Nánar
Fáni Ítalíu AC Milan 2-1 Fáni Englands Liverpool Ólympíuleikvangurinn í Aþenu,
Aþena, Grikkland
2005/06
Nánar
Fáni Spánar FC Barcelona 2-1 Fáni Englands Arsenal FC Stade de France,
París, Frakkland
2004/05
Nánar
Fáni Englands Liverpool FC 3-3, 3-2 (v.) Fáni Ítalíu A.C. Milan Atatürk Olympic Stadium,
Istanbul, Tyrkland
2003/04
Nánar
Fáni Portúgals Porto 3-0 Fáni Mónakó Monaco Arena AufSchalke,
Gelsenkirchen, Þýskaland
2002/03
Nánar
Fáni Ítalíu A.C. Milan 0-0, 3-2 (v.) Fáni Ítalíu Juventus Old Trafford,
Manchester, England
2001/02
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid FC 2-1 Fáni Þýskalands Bayer 04 Leverkusen Hampden Park,
Glasgow, Skotland
2000/01
Nánar
Fáni Þýskalands Bayern München 1-1, 5-4 (v.) Fáni Spánar Valencia San Siro,
Mílanó, Ítalía
1999/2000
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid FC 3-0 Fáni Spánar Valencia Stade de France,
París, Frakkland
1998/99
Nánar
Fáni Englands Manchester United FC 2-1 Fáni Þýskalands Bayern München Camp Nou,
FC Barcelona, Spánn
1997/98
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid CF 1 - 0 Fáni Ítalíu Juventus FC Amsterdam ArenA,
Amsterdam, Holland
1996/97
Nánar
Fáni Þýskalands Borussia Dortmund 3-1 Fáni Ítalíu Juventus Olympiastadion,
Munich, Þýskaland
1995/96
Nánar
Fáni Ítalíu Juventus FC 1-1, 4-2 (v.) Fáni Hollands AFC Ajax Stadio Olimpico,
Róm, Ítalía
1994/95
Nánar
Fáni Hollands AFC Ajax 1-0 Fáni Ítalíu AC Milan Ernst Happel Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1993/94
Nánar
Fáni Ítalíu AC Milan 4-0 Fáni Spánar FC Barcelona Ólympíuleikvangurinn í Aþenu,
Aþena, Grikklandi
1992/93
Nánar
Fáni Frakklands Olympique de Marseille 1-0 Fáni Ítalíu AC Milan Olympiastadion,
Munich, Þýskaland
1991/92
Nánar
Fáni Spánar FC Barcelona 1 - 0 (frl.) Fáni Ítalíu UC Sampdoria Wembley,
London, England
1990/91
Nánar
Rauða stjarnan Belgrad 0-0, 5-3 (v.) Fáni Frakklands Olympique de Marseille Stadio San Nicola,
Bari , Ítalía
1989/90
Nánar
Fáni Ítalíu AC Milan 1-0 Fáni Portúgals S.L. Benfica Prater Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1988/89
Nánar
Fáni Ítalíu AC Milan 4-0 Steau Bucharest Camp Nou,
Barcelona, Spánn
1987/88
Nánar
Fáni Hollands PSV Eindhoven 0-0, 6-5 (v.) Fáni Portúgals Benfica Neckarstadion,
Stuttgart, Þýskaland
1986/87
Nánar
Fáni Portúgals FC Porto 2-1 Fáni Þýskalands Bayern München Prater Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1985/86
Nánar
Steaua Búkarest 0-0, 2-0 (v.) Fáni Spánar FC Barcelona Sánchez Pizjuán,
Sevilla, Spánn
1984/85
Nánar
Fáni Ítalíu Juventus 1-0 Fáni Englands Liverpool Heysel Stadium,
Brussel, Belgía
1983/84
Nánar
Fáni Englands Liverpool 1-1, 4-2 (v.) Fáni Ítalíu AS Roma Stadio Olimpico,
Róm , Ítalía
1982/83
Nánar
Fáni Þýskalands Hamburger SV 1-0 Fáni Ítalíu Juventus Ólympíuleikvangurinn í Aþenu,
Aþena, Grikkland
1981/82
Nánar
Fáni Englands Aston Villa 1-0 Fáni Þýskalands Bayern München De Kuip,
Rotterdam, Holland
1980/81
Nánar
Fáni Englands Liverpool 1-0 Fáni Spánar Real Madrid Parc des Princes,
París, Frakklandi
1979/80
Nánar
Fáni Englands Nottingham Forest 1-0 Fáni Þýskalands Hamburger SV Santiago Bernabeu,
Madrid, Spánn
1978/79
Nánar
Fáni Englands Nottingham Forest 1-0 Fáni Svíþjóðar Malmö Olympiastadion,
München, Þýskaland
1977/78
Nánar
Fáni Englands Liverpool 1-0 Fáni Belgíu Club Brugge KV Wembley,
London, England
1976/77
Nánar
Fáni Englands Liverpool 3-1 Fáni Þýskalands VfL Borussia Mönchengladbach Stadio Olimpico,
Róm , Ítalía
1975/76
Nánar
Fáni Þýskalands Bayern München 1-0 Fáni Frakklands AS Saint-Étienne Hampden Park,
Glasgow, Skotland
1974/75
Nánar
Fáni Þýskalands Bayern München 2-0 Fáni Englands Leeds United Parc des Princes,
París, Frakkland
1973/74
Nánar
Fáni Þýskalands Bayern München 1-1, 4-0 (v.) Fáni Spánar Atlético Madrid Heysel Stadium,
Brussel, Belgía
1972/73
Nánar
Fáni Hollands Ajax 1-0 Fáni Ítalíu Juventus Crvena Zvezda Stadium,
Belgrade, Júgóslavía
1971/72
Nánar
Fáni Hollands Ajax 2-0 Fáni Ítalíu Inter Mílanó De Kuip,
Rotterdam, Holland
1970/71
Nánar
Fáni Hollands Ajax 2-0 Fáni Grikklands Panathinaikos Wembley,
London, England
1969/70
Nánar
Fáni Hollands Feyenoord 2-1 (frl.) Fáni Skotlands Celtic San Siro,
Mílanó , Ítalía
1968/69
Nánar
Fáni Ítalíu AC Milan 4-1 Fáni Hollands Ajax Santiago Bernabeu,
Madrid, Spánn
1967/68
Nánar
Fáni Englands Manchester United 4-1 (frl.) Fáni Portúgals S.L. Benfica Wembley,
London, England
1966/67
Nánar
Fáni Skotlands Celtic 2-1 Fáni Ítalíu Inter Mílanó Estádio Nacional,
Oeiras, Portúgal
1965/66
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 2-1 FK Partizan Heysel Stadium,
Brussel, Belgía
1964/65
Nánar
Fáni Ítalíu Inter Mílanó 1-0 Fáni Portúgals Benfica San Siro,
Mílanó , Ítalía
1963/64
Nánar
Fáni Ítalíu Inter Mílanó 3-1 Fáni Spánar Real Madrid Prater Stadium,
Vínarborg, Austurríki
1962/63
Nánar
Fáni Ítalíu AC Milan 2-1 Fáni Portúgals Benfica Wembley,
London, England
1961/62
Nánar
Fáni Portúgals Benfica 5-3 Fáni Spánar Real Madrid Olympisch Stadion,
Amsterdam, Holland
1960/61
Nánar
Fáni Portúgals Benfica 3-2 Fáni Spánar Barcelona Wankdorf Stadium,
Bern, Sviss
1959/60
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 7-3 Fáni Þýskalands Eintracht Frankfurt Hampden Park,
Glasgow, Skotland
1958/59
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 2-0 Fáni Frakklands Stade de Reims-Champagne Neckarstadion,
Stuttgart, Þýskaland
1957/58
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 3-2 (frl.) Fáni Ítalíu AC Milan Heysel Stadium,
Brussel, Belgía
1956/57
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 2-0 Fáni Ítalíu Fiorentina Santiago Bernabeu,
Madrid, Spánn
1955/56
Nánar
Fáni Spánar Real Madrid 4-3 Fáni Frakklands Stade de Reims-Champagne Parc des Princes,
París, Frakkland

Tölfræði

[breyta | breyta frumkóða]

Sigurliðin

[breyta | breyta frumkóða]

Listi yfir öll sigurlið Meistaradeildarinnar frá upphafi.

Röð Sigurlið Titlar Ár 2. sætið
1 Real Madrid 15 1956, 1957, 1958, 1959, 1960, 1966, 1998, 2000, 2002, 2014, 2016, 2017, 2018, 2022, 2024 (3) 1962, 1964, 1981,
2 AC Milan 7 1963, 1969, 1989, 1990, 1994, 2003, 2007 (4) 1958, 1993, 1995, 2005
3-4 Liverpool 6 1977, 1978, 1981, 1984, 2005, 2019 (4) 1985, 2007, 2018, 2022
Bayern München 6 1974, 1975, 1976, 2001, 2013, 2020 (5) 1982, 1987, 1999, 2010, 2012
5 Barcelona 5 1992, 2006, 2009, 2011, 2015 (3) 1961, 1986, 1994
6 Ajax 4 1971, 1972, 1973, 1995 (2) 1969, 1996
7-8 Inter Milan 3 1964, 1965, 2010 (3) 1967, 1972, 2023
Manchester United 3 1968, 1999, 2008 (2) 2009, 2011
9-13 Juventus 2 1985, 1996 (7) 1973, 1983, 1997, 1998, 2003, 2015, 2017
Benfica 2 1961, 1962 (5) 1963, 1965, 1968, 1988, 1990
Nottingham Forest 2 1979, 1980 (0)
Porto 2 1987, 2004 (0)
Chelsea 2 2012, 2021 (1) 2008
14-22 Glasgow Celtic 1 1967 (1) 1970
Hamburg 1 1983 (1) 1980
Steaua Búkarest 1 1986 (1) 1989
Olympique de Marseille 1 1993 (1) 1991
Feyenoord 1 1970 (0)
Aston Villa 1 1982 (0)
PSV Eindhoven 1 1988 (0)
Rauða stjarnan Belgrad 1 1991 (0)
Borussia Dortmund 1 1997 2013, 2024 (2)
Manchester City 1 2023

Sigurlið eftir löndum

[breyta | breyta frumkóða]

Uppfært maí. 2022

Röð Sigurland Sigrar Fj. sigurliða Hve oft í 2. sæti
1 Spánn 18 2 11
2 England 15 6 10
3 Ítalía 12 3 17
4-5 Þýskaland 8 3 10
4-5 Holland 6 3 2
6 Portúgal 4 2 5
7-10 Frakkland 1 1 6
Skotland 1 1 1
Rúmenía 1 1 0
Júgóslavía 1 1 1

Leikjahæstu menn

[breyta | breyta frumkóða]

Uppfært 17/5 2023

Röð Leikmaður Leikir Tímabil
1 Cristiano Ronaldo 183 2003-
2 Iker Casillas 177 1999-2019
3 Lionel Messi 161 2005-
4 Xavi 151 1998-2015
5 Karim Benzema 150 2006-
5 Raúl 142 1995-2011
6 Ryan Giggs 141 1993-2014
8 Thomas Müller 140 2009-
10 Sergio Ramos 135 2005-
11 Toni Kroos 133 2008-
12 Manuel Neuer 131 2007-
13 Andrés Iniesta 130 2002-2018
14 Gerard Piqué 126 2004-
15 Sergio Busquets 127 2008-
16 Clarence Seedorf 125 1994-2012
17 Paul Scholes 124 1994-2013
17 Gianluigi Buffon 124 1997-
17 Zlatan Ibrahimovic 124 2001-
18 Roberto Carlos 120 1997-2007

Markahæstu menn

[breyta | breyta frumkóða]

Uppfært 17/5 2023.

Röð Leikmaður Mörk Leikir Tímabil
1 Cristiano Ronaldo 142 182 2003-
2 Lionel Messi 129 161 2005-
3 Robert Lewandowski 90 110 2011-
4 Karim Benzema 90 150 2006-
5 Raúl 71 142 1995-2011
6 Ruud van Nistelrooy 56 73 1998-2009
7 Thomas Müller 53 140 2009-
8 Thierry Henry 50 112 1997-2012
9 Alfredo di Stefano 49 58 1955-1964
10 Andriy Shevchenko 48 100 1994-2012
10 Zlatan Ibrahimovic 48 121 2001-

Íslendingar sem hafa spilað í meistaradeildinni

[breyta | breyta frumkóða]

[1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Yngstur Íslendinga í Meistaradeild Evrópu Skessuhorn, skoðað, 27. október 2020