Góbíeyðimörkin
Góbíeyðimörkin er stór eyðimörk í Asíu. Hún nær yfir hluta af norður- og norðvesturhéruðum Kína og suðurhluta Mongólíu. Eyðimörkin afmarkast af Altaifjöllum og graslöndum og steppum Mongólíu í norðri, af Hexi-skarði og Tíbethásléttunni í suðvestri og af sléttum í norðurhluta Kína í suðaustri.
Góbíeyðimörkin er þekkt í mannkynssögunni sem hluti af Mongólaveldinu og vegna þess að í henni eru margar mikilvægar borgir sem lágu við Silkiveginn. Hún er tæplega 1,3 milljón km2.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Góbíeyðimörkinni.