Þorsteinn Gíslason
Þorsteinn Vilhjálmur Gíslason (26. janúar 1867 – 20. október 1938) var íslenskt skáld, ritstjóri og þýðandi. Þorsteinn vakti máls á stofnun íslensks háskóla. Hann var fylgjandi aðskilnaði við Danmörku og fylgdi Valtý Guðmundssyni að málum gegn heimastjórnarmönnum en síðar breyttist það.
Þorsteinn las norræna tungu og bókmenntir við Kaupmannahafnarháskóla en var meinað að þreyta próf því skólinn viðurkenndi ekki íslenskar bókmenntir eftir 1500. Þorsteinn var ritstjóri Sunnanfara (með Einari Benediktssyni), Bjarka (með Þorsteini Erlingssyni), Skírnis, Óðins, Lögréttu og Morgunblaðsins. Þorsteinn þýddi sálma, þar á meðal sálm 19 og 524 fyrir íslenska sálmabók. Hann þýddi einnig verk eftir Björnstjerne Björnson, Fjodor Dostojevskí, Émile Zola, Rudyard Kipling, Guy de Maupassant, Walter Scott, Gunnar Gunnarsson og Henrik Ibsen.
Þorsteinn var faðir Gylfa Þ. Gíslasonar, menntamálaráðherra 1956-1971, og Vilhjálms Þ. Gíslasonar, útvarpsstjóra 1953-1967. Barnabörn hans voru Þorsteinn Gylfason, Þorvaldur Gylfason, Vilmundur Gylfason, Þór Heimir Vilhjálmsson, Yrsa Ingibjörg Vilhjálmsdóttir og Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Allt þjóðþekktir Íslendingar.
Útgefið efni
breytaLjóð
breyta- Kvæði (1893)
- Nokkur kvæði (1904)
- Ljóðmæli (1920)
- Dægurflugur (1925)
- Önnur ljóðmæli (1933)
Bækur
breytaTenglar
breyta- Æviágrip á vefsíðu Þorvalds Gylfasonar Geymt 14 mars 2007 í Wayback Machine
- Sálmur 19 Geymt 7 október 2007 í Wayback Machine, þýddur af Þorsteini
- Sálmur 524 Geymt 4 mars 2016 í Wayback Machine, þýddur af Þorsteini
Fyrirrennari: Jón Ólafsson |
|
Eftirmaður: Guðmundur Finnbogason |