[go: up one dir, main page]

Æsir (ft. af ás) eru goð í norrænni goðafræði, annar af tveimur flokkum goða og sá meiri. Hinn flokkurinn eru Vanir. Æsir búa, samkvæmt goðafræðinni, í Ásgarði og þeir sem trúa á þá kallast ásatrúar.

Ættfaðir ása og æðstur þeirra er Óðinn sem var sonur jötunsins Bestlu og risans Bors. Bor var sonur Búra sem var sleiktur úr hrími Ginnungagaps af Auðhumlu. Óðinn og bræður hans Vilji og sköpuðu heiminn úr líkama jötunsins Ýmis sem þeir drápu. Síðar sköpuðu þeir mennina úr viði Emblu og Asks. Aðrir mikilvægir æsir eru meðal annarra þrumuguðinn Þór (en hann var mest dýrkaður á Íslandi fyrr á öldum), Baldur hinn bjarti, Týr guð hernaðar og bardaga, hinn hrekkvísi og klaufski Loki (sem má reyndar deila um hvort hafi verið ás eða ekki), Frigg kona Óðins og Iðunn sem gætti eplanna sem héldu goðunum ungum.

Tengt efni

breyta



   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.