[go: up one dir, main page]

Ástralskur dalur (enska: Australian dollar) hefur verið gjaldmiðill Ástralíu frá því árið 1966. Hann gildir þar að auki á eyríkjunum Kíribatí, Nárú og Túvalú. Hann er vanalega táknaður með merkinu $. Stundum eru þó notuð A$, $A, AU$, $AU eða AUD til aðgreiningar frá öðrum gjaldmiðlum kölluðum dalir. Einn ástralskur dalur skiptist í 100 sent, táknað með c.

Ástralskur dalur
Australian dollar
LandFáni Ástralíu Ástralía
Fáni Kiríbatí Kíribatí
Fáni Nárú Nárú
Fáni Túvalús Túvalú
Skiptist í100 sent
ISO 4217-kóðiAUD
Skammstöfun$ / A$ / AUD / c / ¢
Mynt5c, 10c, 20c, 50c , $1, $2
Seðlar$5, $10, $20, $50, $100

Allar eldri ástralskar myntir og peningaseðlar, meðal annars pund, skildingar og pens (sem áður voru notuð), gilda enn sem gjaldmiðlar í Ástralíu. Ástralskur dalur notar bæði seðla og myntir. Seðlarnir eru allir úr sérstakri gerð af plasti $5, $10, $20, $50 og $100 að virði. Myntirnar gilda 1c, 2c, 5c, 10c, 20c, 50c, $1 og $2 og eru slegnar af Konunglegu áströlsku myntsláttunni. Það er Seðlabanki Ástralíu sem gefur þá út.

Tenglar

breyta
   Þessi hagfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.