Yoweri Museveni
Yoweri Museveni | |
---|---|
Forseti Úganda | |
Núverandi | |
Tók við embætti 29. janúar 1986 | |
Forsætisráðherra | Samson Kisekka George Cosmas Adyebo Kintu Musoke Apollo Nsibambi Amama Mbabazi Ruhakana Rugunda Robinah Nabbanja |
Varaforseti | Samson Kisekka Specioza Kazibwe Gilbert Bukenya Edward Ssekandi Jessica Alupo |
Forveri | Tito Okello |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 15. september 1944 Ntungamo, Úganda |
Stjórnmálaflokkur | Þjóðarandspyrnuhreyfingin (enska: National Resistance Movement, svahílí: Harakati za Upinzani za Kitaifa) |
Maki | Janet Kainembabazi (g. 1973) |
Börn | Muhoozi, Natasha, Patience, Diana |
Háskóli | Háskólinn í Dar es Salaam |
Starf | Stjórnmálamaður |
Yoweri Museveni (f. 15. september 1944) er úgandskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Úganda frá árinu 1986. Museveni var þátttakandi í uppreisnarhreyfingum sem steyptu af stóli ríkisstjórnum Idi Amin (1971–79) og Miltons Obote (1980–85).[1][2]
Á tíunda áratugnum naut Museveni talsverðrar hylli á vesturlöndum sem fulltrúi nýrrar kynslóðar afrískra leiðtoga. Á forsetatíð Museveni hefur tilölulegur stöðugleiki og hagvöxtur ríkt í Úganda. Hins vegar hafa valdaár hans einnig einkennst af afskiptum Úganda af borgarastríði í Kongó og öðrum hernaðarátökum við Stóru vötnin. Þar á meðal má nefna uppreisn Andspyrnuhers Drottins í norðurhluta Úganda, sem kostaði fjölda mannslífa. Museveni hefur einnig staðið fyrir bælingu á pólitísku andófi og hefur gert breytingar á úgöndsku stjórnarskránni til þess að nema úr gildi takmarkanir á fjölda kjörtímabila sem forsetinn má sitja (2005) og aldurstakmark á forsetaembættið (2017) til þess að framlengja valdatíð sína.
Árið 2023 samþykkti Museveni ströng lög gegn samkynhneigð í Úganda. Samkvæmt lögunum getur það að „taka þátt í samkynhneigðu athæfi“ varðað lífstíðarfangelsi. Svokölluð „samkynhneigð af ásetningi“ getur varðað dauðarefsingu.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Museveni myndar nýja ríkisstjórn“. Morgunblaðið. 31. janúar 1986. Sótt 11. október 2018.
- ↑ „Museveni forseti í 30 ár“. RÚV. 26. janúar 2018. Sótt 11. október 2018.
- ↑ „Forseti Úganda samþykkir lög gegn samkynhneigð“. mbl.is. 29. maí 2023. Sótt 29. ágúst 2023.
Fyrirrennari: Tito Okello |
|
Eftirmaður: Enn í embætti |