Upplýsingalæsi
Upplýsingalæsi er nýlegt hugtak á sviði bókasafns- og upplýsingafræða sem snýst um að geta skilgreint ákveðna og meðvitaða upplýsingaþörf og geta fullnægt henni með því að afla viðkomandi þekkingar. Hugtakið er ákveðin framlenging á hugtakinu læsi sem vísar til þess að kunna að lesa. Aðrar framlengingar á læsi hafa einnig verið nefndar til sögunnar og jafnvel talist nauðsynlegar til þess að einhver geti talist upplýsingalæs; s.s. myndlæsi, fjölmiðlalæsi, tölvulæsi og netlæsi.[1]
Í Prag-yfirlýsingunni svonefndu um eflingu upplýsingalæsis í samfélaginu frá árinu 2003 var upplýsingalæsi sagt fela í sér „þekkingu á eigin upplýsingaþörfum og hæfileikanum til að staðsetja, finna, meta, skipuleggja og nota á skilvirkan hátt upplýsingar við að fjalla um þau málefni og viðfangsefni sem eru til staðar, er forsenda þess að taka fullan þátt í upplýsingasamfélaginu og er hluti af þeim grundvallar mannréttindum að njóta símenntunar“.[2] Við þessa skilgreiningu hefur krafa um siðræna notkun upplýsinga og gagnrýna hugsun einnig bætst.
Hugtakið upplýsingalæsi er fyrst talið hafa verið notað árið 1974 af Paul G. Zurkowski, sem var þá formaður Samtaka Upplýsingaiðnaðsins (í dag Software and Information Industry Association).[3] Með aukinni hnattvæðingu; þróunar á sviði upplýsingatækni hefur umræða um upplýsingalæsi orðið meira áberandi.
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Ingibjörg Steinunn Sverrisdóttir (2001). „Upplýsingalæsi - nauðsynleg kunnátta á nýrri öld - þróun hugtaks“. Bókasafnið. 25 (1): 7–11.
- ↑ „Prag yfirlýsingin um eflingu upplýsingalæsis í samfélaginu“ (pdf). 2003.
- ↑ Paul G. Zurkowski (1974). „The Information Service Environment Relationships and Priorities. Related Paper No. 5“.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Upplýsing.is: Vefur bókasafns- og upplýsingafræða
- Kennsluvefur Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða, um upplýsingalæsi
- Ertu upplýsingalæs?[óvirkur tengill], af vef Auðar Harðardóttur
- Vefur Alþjóðasamtaka bókasafna um upplýsingalæsi
- Association of College and Research Libraries Geymt 13 nóvember 2010 í Wayback Machine, vefur Samtaka amerískra rannsóknarbókavarða um upplýsingalæsi á háskólastigi
- InfoLit GLOBAL Geymt 12 maí 2010 í Wayback Machine, vefur á vegum IFLA og Unesco um upplýsingalæsi)
- SCONUL - Society of College, National and University Libraries Geymt 24 janúar 2010 í Wayback Machine, enskur háskólavefur um upplýsingalæsi
- Fjölmiðlar og upplýsingalæsi á vef UNESCO
- NordInfoLit Geymt 27 október 2010 í Wayback Machine
Greinar
[breyta | breyta frumkóða]- Upplýsingalæsi - nauðsynleg kunnátta á nýrri öld - þróun hugtaks, grein eftir Ingibjörgu Sverrisdóttur í Bókasafninu Geymt 10 júní 2014 í Wayback Machine
- Mat á kennslu í upplýsingalæsi á háskólastigi - tillögur fyrir bókasafn Háskólans á Akureyri, grein eftir Astrid Margrét Magnúsdóttir í Bókasafninu Geymt 10 júní 2014 í Wayback Machine
- Information literacy and its importance for the information and knowledge society, Þórdís T. Þórarinsdóttir
- Prag yfirlýsingin (2003)[óvirkur tengill] um eflingu upplýsingalæsis í samfélaginu
- Alexandríuyfirlýsingin (2005)[óvirkur tengill] um upplýsingalæsi og símenntun
- ACRL - Information Literacy Competency Standards for Higher Education, staðall um upplýsingalæsi á háskólastigi
- Australian and New Zealand Information Literacy Framework Geymt 22 mars 2019 í Wayback Machine, staðall frá Ástralíu og Nýja Sjálandi
- Understanding Information Literacy, bók sem er útgefin af UNESCO
- Netríkið Ísland - Stefna ríkisstjórnar Íslands um upplýsingasamfélagið 2008 – 2012
- Ávarp ráðherra, Katrínar Jakobsdóttur á landsfundi Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða