Tindfjallajökull
Útlit
63°47′09″N 19°34′00″V / 63.78583°N 19.56667°V
Tindfjallajökull | |
Tindfjallajökull séður úr flugvél | |
Hæð | 1.462 metrar yfir sjávarmáli |
Staðsetning | Rangárvallasýsla |
Fjallgarður | Tindfjöll |
Tindfjallajökull er jökull á sunnanverðu Íslandi beint norður af Eyjafjallajökli. Jökullinn er um 19 km2 að flatarmáli.[1] Hæsti tindur Tindfjallajökuls er Ýmir sem er 1.462 metra hár og dregur nafn sitt af jötninum Ými í norrænni goðafræði. Tindfjallajökull er eldkeila. Um 5 km breið askja er við jökulinn sem myndaðist í sprengigosi fyrir um 54.000 árum. Hann er kenndur við Tindfjöll sem eru nokkrum kílómetrum sunnar.
Eldstöðvakerfi
[breyta | breyta frumkóða]Tindfjallajökull er bæði megineldstöð og ein af 41. eldstöðvakerfum á Íslandi.[2]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Landmælingar Íslands - Ísland í tölum“. Sótt 15. ágúst 2009.
- ↑ „Eldvirkni | Icelandic Institute of Natural History“. www.ni.is. Sótt 6. maí 2024.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Category:Tindfjallajökull.
Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.