Tíber
Útlit
Tíber eða Tífur er á sem rennur um Ítalíu í gegnum borgina Róm framhjá Vatíkaninu.
Tíber er sögð hafa flutt stofnendur Rómar, Rómúlus og Remus, að bökkum árinnar þar sem þeir stofnuðu síðar borgina. Hún er þriðja lengsta á Ítalíu, 406 km eftir Pó og Adige, og rennur í suðvestur.