Sumar
Útlit
|
|
Sumar er eitt af árstíðarheitunum fjórum á tempraða beltinu. Hinar eru haust, vetur og vor. Sumur á norðurhveli jarðar miðast oftast við mánuðina júní, júlí og ágúst, en á suðurhveli við desember, janúar og febrúar. Veðurstofa Íslands telur sumar vera mánuðina júní, júlí, ágúst og september, en þetta eru þeir fjórir mánuðir ársins, sem að jafnaði hafa hæstan meðalhita.[1]
Eldri notkun
[breyta | breyta frumkóða]Á norræna tímatalinu hefst sumarið á sumardaginn fyrsta, sem er fyrsti fimmtudagurinn eftir 18. apríl. Sumartímabilinu lýkur á föstudegi á tímabilinu 20. til 27. október. Í þessu kerfi eru aðeins tvær árstíðir: sumar og vetur.