Mitsubishi Starion
Mitsubishi Starion | |
---|---|
Framleiðandi | Mitsubishi Motors |
Einnig kallaður | Chrysler Conquest, Dodge Conquest Mitsubishi Starion, Plymouth Conquest |
Framleiðsluár | 1982–1989 |
Forveri | Mitsubishi Sapporo |
Arftaki | Mitsubishi GTO |
Flokkur | Sportbíll |
Yfirbygging | 3-dyra coupé |
Vélarhönnun | FR útlit |
Vél | 4G63 2.0 L I4 4G54 2.6 L I4 |
Skipting | 5-gíra Beinskiptur 4-gíra Sjálfskipting |
Hjólhaf | 2435 mm |
Lengd | 4410 mm |
Breidd | 1685 mm (Mjórri) 1745 mm (Breiðari) |
Hæð | 1320 mm |
Eigin þyngd | 1340 kg |
Mitsubishi Starion er sportbíll sem er í laginu eins og flestar eldri gerðir sportbíla, svo sem Toyota Supra Turbo, Porsche 924 Turbo, Nissan 200SX eða Mazta Rx-7. Hann var framleiddur fyrst árið 1982 í Japan þar sem vinsældir Grand Tourer (GT) sportbíla voru að aukast. Mitsubishi brást við með því að búa til þennan sportbíl.
Yfirlit
[breyta | breyta frumkóða]Starion var alltaf talinn venjulegur afturhjóladrifinn sport bíll með vélina að framan. Margir komu með læst drif eða SSD og ABS bremsum frá framleiðanda. Sérstakt var við þennan bíl að skottið var aðeins gluggi en margir héldu að það myndi bronta auðveldlega. Svo var ekki.
Tvær vélarstærir voru í boði, 2,0 lítra 4G63 og 2,6 lítra G53B. Tveggja lítra vélin var forþjöppuvædd 4ra strokka vél, oftast með millikæli („intercooler“) en það fór eftir týpunúmerum. Sami vélargrunnur og Mitsubishi Lancer Evolution notar. 4G63 vélin var frá 150 hestöflum að 197 hestöflum. 2,6 lítra vélin var einnig forþjöppuvædd 4ra strokka vél sem hafði stundum millikæli líka, en hún var aðeins framleidd fyrir amerískan markað. En þótt vélin hafi verið stærri náði hún aldrei meira en 170-180 hestöflum. Aftur á móti var sterkari kjallari og meira hægt að „tjúna“ 2,6 lítra vélina án mikilla breytinga að innanverðu.
Týpur
[breyta | breyta frumkóða]Ástralía
[breyta | breyta frumkóða]- JA - 1982–1984
- JB - 1984–1985
- JD - 1985–1987
Bandaríkin
[breyta | breyta frumkóða]- LS
- ES
- LE
- ESI-R
- TSi
Evrópa
[breyta | breyta frumkóða]- Non-Turbo
- TURBO
Japan
[breyta | breyta frumkóða]- GX - 1982–1983 (ekki túrbó)
- GSR-I,GSR-II,GSR-III, GSR-X, - 1982–1984
- GSR-II, GSR-III,GSR-X,GSR-V - 1985–1986 - Þessir höfðu kastara í stuðaranum
- GSR-V - 1986–1987 - sumir höfðu Sirius Dash vél
- GSR-VR - 1987–1988 (breiða útlitið)