[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Hringur Jóhannesson

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hringur Jóhannesson (21. desember 1932 - 17. júlí 1996) var íslenskur myndlistamaður. Hann þótti vera einn helsti fulltrúi ljóðræns nýraunsæis í íslenskri myndlist á 7. og 8. áratugnum.

Hringur fæddist að Haga í Aðaldal. Hann útskrifaðist úr Handíða- og myndlistarskóla Íslands árið 1952 og hélt sína fyrstu einkasýningu 1962. Alls urðu einkasýningar hans tæpar fjörtíu og samsýningar um sjötíu, bæði hér á landi og erlendis. Hann var kennari við Handíða- og myndlistaskóla Íslands 1959-1962, Myndlistaskólann í Reykjavík frá 1962 og í stjórn skólans frá 1965. Hringur myndskreytti fjöldann allan af blöðum, tímaritum og einnig margar byggingar. Hann lést á Landspítalanum í Reykjavík og er jarðaður í Neskirkjugarði í Aðaldal.

Eitt og annað um Hring

[breyta | breyta frumkóða]
  • Erró sagði í viðtali á RÚV 2011 að Hringur hafði verið betri teiknari en hann sjálfur.
  • Erró sagði í viðtali á RÚV 2008 að Hringur hafði verið tíu sinnum betri teiknari en hann sjálfur.
  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.