Kerlingarfjöll
Útlit
Kerlingarfjöll | |
---|---|
Hæð | 1.477 metri |
Land | Ísland |
Sveitarfélag | Hrunamannahreppur |
Hnit | 64°39′N 19°15′V / 64.65°N 19.25°V |
breyta upplýsingum |
Kerlingarfjöll er fjallgarður á hálendi Íslands nálægt Kili. Jarðvegur er sums staðar rauður á svæðinu vegna eldvirkni þar. Jarðefni úr hverum á svæðinu eru gul, rauð og græn. Hveradalir eru aðalhverasvæðið þar. Vinsælt skíðasvæði var í Kerlingarfjöllum en það var aflagt árið 2000. Aðstaða er fyrir ferðamenn í Kerlingarfjöllum en Skíðaskóli var stofnaður þar árið 1961.[1] Þekktir tindar þar eru Loðmundur, Snækollur, Fannborg, Höttur, Ögmundur og Kerlingartindur. Snækollur er þeirra hæstur eða 1488 metrar. Fjöllin eru nefnd eftir móbergsdranga við Kerlingartind, Kerlingu.
Árið 2020 voru fjöllin og svæði umhverfis friðlýst, 344 ferkílómetrar. [2] Árið 2023 opnaði þar hótel og var aðstaða bætt. [3]
Svipmyndir
[breyta | breyta frumkóða]-
Kerlingarfjöll
-
Í Hveradölum er jarðhiti.
-
Loðmundur til vinstri, Snækollur til hægri.
-
Fjöllin úr fjarska
-
Um 1900
-
Litið suður.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Friðlýsing í vinnslu Kerlingarfjöll Geymt 19 apríl 2017 í Wayback Machine
- Kort af fyrirhuguðu friðunarsvæði í Kerlingarfjöllum
- Contribution to the geology of the Kerlingarfjöll[óvirkur tengill]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ kerlingarfjoll.is
- ↑ Kerlingarfjöll friðlýst Rúv, skoðað 10/8 2020
- ↑ 29 milljarða króna framkvæmdir í Kerlingarfjöllum Rúv, sótt 29/5 2023