Esslingen
Esslingen | |
---|---|
Sambandsland | Baden-Württemberg |
Flatarmál | |
• Samtals | 46,42 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 241 m |
Mannfjöldi (2013) | |
• Samtals | 89.242 |
• Þéttleiki | 1.922/km2 |
Vefsíða | www.esslingen.de Geymt 16 júní 2012 í Wayback Machine |
Esslingen er borg í sambandslandinu Baden-Württemberg í Þýskalandi. Íbúar eru 89 þúsund (31. desember 2013). Borgin er helst þekkt fyrir margar gamlar byggingar í miðborginni.
Lega
[breyta | breyta frumkóða]Esslingen liggur við ána Neckar, rétt suðaustan við Stuttgart. Borgirnar eru því sem næst samvaxnar.
Orðsifjar
[breyta | breyta frumkóða]Borgin hét áður Ezelingin og Ezelingas. Það er dregið af mannanafninu Azzilo. Fullt heiti borgarinnar í dag er Esslingen am Neckar.
Skjaldarmerki
[breyta | breyta frumkóða]Skjaldarmerki borgarinnar er svartur örn á gulum grunni. Örninn er merki ríkisins. Innan í honum er lítill tvílita skjöldur, grænn og rauður, með bókstöfunum C og E, en þeir standa fyrir Civitas Esslingensis, heiti borgarinnar á latnesku. Skjaldarmerki þetta kom fram 1219, en elsta mynd af því er frá 1232, reyndar bara af erninum. Litla skildinum var bætt við seinna. Bókstöfunum var bætt við á 17. öld.
Saga Esslingen
[breyta | breyta frumkóða]- 777 e.Kr. kom Esslingen fyrst við skjöl, en þá var þar klaustur.
- 784 voru líkamsleifar píslarvottarins Vítalis fluttar til klaustursins og var það upphafið að því að Esslingen varð að pílagrímsstað.
- 1181 gerði keisarinn Friðrik Barbarossa Esslingen að ríkisborg.
- 1246 börðust borgarbúar með Staufen-ættinni í orrustu við Frankfurt. Það markaði 100 ára ófrið við Württemberg.
- 1448-1454 átti borgin í stríði við greifann Ulrich V. frá Württemberg vegna tollamála.
- 1519 átti sér stað síðasta orrustan milli Esslingen og Württemberg. Esslingen tekur að hnigna.
- 1526 hófust siðaskiptin í borginni, en frá 1551 var borgin tvískipt milli trúarbragðanna.
- Í 30 ára stríðinu (1618-48) dó helmingur íbúanna úr hungri eða sjúkdómum. Við friðarsamningana í Vestfalíu missti borgin fríborgarstatus sitt.
- 1688 hertóku Frakkar (Mélac hershöfðingi) borgina í erfðastríðinu í Pfalz.
- 1701 geysaði stórbruni í borginni sem eyddi stórum hluta hennar.
- 1802 var borgin innlimuð í Württemberg að tilstuðlan Frakka.
- 1845 fékk borgin járnbrautartengingu í línunni Ludwigsburg – Stuttgart – Esslingen.
- 1918 kom til mikilla óeirða í borginni. Kommúnistar tóku þá völdin og voru ekki hraktir burt fyrr en að ári.
- 1945 hertóku bandarískar herdeildir borgina, sem slapp við allar loftárásir. Hún varð hluti af bandaríska hernámssvæðinu.
Myndasafn
[breyta | breyta frumkóða]-
Gamla ráðhúsið er frá 1420
-
Glæsihúsið Kielmayerhaus í miðborginni
-
Íbúðarhús á Pliesenau-brúnni
-
Schelztor er gamalt borgarhlið
-
Kirkja heilags Díónýsíusar í miðborginni
-
Feiti turninn (Dicker Turm) var hluti af gömlu borgarmúrunum
-
Glæsihúsið Speyrer Zehnthof í miðborginni
-
Aðalmarkaðstorgið
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Esslingen am Neckar“ á þýsku útgáfu Wikipedia. Sótt janúar 2010.