Asíulaukur
Útlit
Asíulaukur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Allium altaicum Pall. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
|
Asíulaukur (fræðiheiti: Allium altaicum) er tegund af laukplöntum, ættuð frá Asíuhluta Rússlands (Altay, Buryatiya, Zabaykalsky Krai, Irkutsk, Tuva, Amur Oblast), Mongólíu, Kazakhstan og Norður-Kína (Innri Mongólía, Heilongjiang og Xinjiang).[1][2]
Lýsing
[breyta | breyta frumkóða]Asíulaukur myndar mjóegglaga lauka að 4 sm í þvermál. Blómstöngullinn er rörlaga, að 100 sm á hæð. Blöðin eru einnig rörlaga, gild, að 50 sm löng. Blómin eru fölgul, að 20 mm í þvermál. Egglegið er egglaga, fræflar eru lengri en krónublöðin.[3][4] Hann blómstrar í júní til júlí. Hann þolir að -29°C frost.[5] [6]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Flora of China v 24 p 192.
- ↑ Kew World Checklist of Selected Plant Families
- ↑ Peter Simon von Pallas. 1773. Reise durch verschiedene Provinzen des russischen Reichs 2: 737, pl. R.
- ↑ line drawing, Flora of China Illustrations vol. 24, fig. 213, 5-8
- ↑ Megabook (2016). Loek altajski – Allium altaicum Pall. Skoðað 13 mars 2016.
- ↑ Tsjoechina, I.G. (2009). Allium altaicum Pallas - Altai onion. Skoðað 13 mars 2016.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Asíulaukur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Allium altaicum.