[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

County Cork

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
County Cork
Contae Chorcaí
Kort með County Cork upplýst.
County Cork
Upplýsingar
Flatarmál: 7,508 km²
Höfuðstaður sýslu: Cork
Kóði: C (CK tillaga)
Íbúafjöldi: 518.128 (2011)
Hérað: Munster

Cork-sýsla (Írska Contae Chorcaí, enska County Cork) er suðvestasta og stærsta sýsla Írlands, staðsett í Munster-héraði. Oft er hún kölluð „sýsla uppreisnarsegganna“ (e. “The Rebel County”), en það stafar af því að hún tók afstöðu gegn Breska heimsveldinu í flestum deilum sem komu upp. Cork er þekkt fyrir Blarney-steininn og bæinn Cobh (áður Queenstown), síðasta viðkomustað Titanic og höfnin sem um ein milljón írskra vesturfara fór frá á leið til Bandaríkjanna, Ástralíu, Nýja Sjálands, Kanada eða Suður-Afríku. Höfuðstaður sýslunar er samnefnd, Cork, sem er næststærsta borg írska lýðveldisins og höfuðstaður héraðsins Munster. Nafnið Chorcaí, eða Corcaigh, merkir mýri, en borgin Cork er byggð á miklu mýrarsvæði nálægt ánni Lee.

Áður fyrr var Cork-sýslu skipt í tvennt, en hinn hlutinn, sem vestari var, hét Desmond-sýsla.

Í Cork-sýslu eru tvö Gaeltacht svæði, þ.e. svæði þar sem írska er töluð sem aðalmál. Þau heita Múscraí (Muskerry), í norðurhluta sýslunar, og Oileán Chléire (Cape Clear), eyja í vesturhluta sýslunar sem ferja gengur til.

Mjög sérstæð mállýska írsku er töluð í Cork, kölluð Munster-írska. Hún er frábrugðin þeirri írsku sem töluð er í Connacht og Ulster bæði í framburði, hljóðkerfi og orðaforða. Dæmi:

  • in aon chur (aðrar málýskur: ar chor ar bith; merkir „hvað sem því líður“)
  • (aðrar málýskur: faoi; merkir „undir“)
  • Gaelainn (aðrar málýskur: Gaeilge; merkir „írska“ (tungumálið))
  • (aðrar málýskur: nach; merkir „[það er] ekki“)