Þelgró
Útlit
Þelgró (teliospore eða teleutospore) á við um sérhæfð gró sveppa, til dæmis sumra ryðsveppa (Uredinomycetes) og brandsveppa (Ustilaginomycetes). Þelgró hafa þykka frumuveggi sem auðveldar þeim að liggja í dvala í langan tíma. Grókólfur vex út úr þelgrói þegar það spírar.
Útlitseinkenni
[breyta | breyta frumkóða]Þelgró eru samansett af einni, tveimur eða fleiri tvíkjarna frumum.
Þelgró eru gjarnan dökkleit og með þykka frumuveggi, sérstaklega meðal tegunda sem leggjast í dvala yfir vetur. Ættkvíslin Puccinia einkenndist áður ef tvífruma þelgróum en það greiningareinkenni er ekki notað lengur.