[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Döbb

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 2. maí 2012 kl. 01:38 eftir Ölnir (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. maí 2012 kl. 01:38 eftir Ölnir (spjall | framlög) (→‎Einkenni Stefnunnar)

Nafnið döbb (e. Dub) er notað yfir þá tónlistarstefnu sem hófst á Jamaica í lok sjöunda áratugarins.[1]Dub er undirstefna reggí tónlistar sem varð til þegar plötusnúðar á Jamaica tóku upptökur af reggí lögum og hljóðblönduðu þær eða „döbbuðu“ á ákveðinn hátt. Áherslunum á hljóðfærum var breytt og ýmsum hljóð-effectum bætt við. döbbið varð fljótt vinsælt á Jamica og víðar og það kom stundum fyrir að döbb útgáfa af einhveru reggí lagi varð vinsælli en upprunalega útgáfan.

Aðal brautryðendur Döbbsins voru Osbourne Ruddock, betur þekktur sem King Tubby, Lee "Scratch" Perry og Errol Thompson. Þessi menn áttu stærstan þátt í að þróa Döbbið og gera það vinsælt í upphafi áttunda áratugarins.

Vinsældir döbbtónlistar hafa dvínað með árunum en döbbið lifir áfram í gegnum þær gífurlega mörgu tónlistarstefnur sem það hefur haft áhrif á. Þar má helst nefna pönk, hip hop, diskó og síðar house, techno, ambient , trip hop, jugle, drum & bass og dubstep. einhver texti

Einkenni Stefnunnar

Ferlið að döbba er þegar áðru upptekin eða tilbúin tónlist er tekin upp aftur með ýmisum breytingum á laginu.
Hið dæmigerða döbb lag verður til þegar eitthvað reggí lag er tekið og hljóðblandað eða döbbað á ákveðinn hátt.
Það sem á sér stað þegar eitthvert lag er döbbað er að mikil áhersla er lögð á bassann og trommuna í laginu
og er djúp bassalína oftast lifandi í gegnum mest allt lagið.
Algengt er að söngurinn og aðal hljóðfærin í laginu séu tekin út en skeytt inn við og við síðar í laginu
og jafn vel með einhverskonarr effectum og er þá söngurinn oftar en ekki í formi bergmáls.
Einstaka Döbb lög eiga það til að innihalda frumlega effecta á borð við dýrahljóð, barnsgrátur og jafn vel framleiðendur
að öskra leiðbeiningum til tónlistarmannanna.
Oft er talað um að döbbtónlist teikni einhverskonar hljóðmynd fyrir hlustandann vegna þess hversu náttúrulegt hljóðið er í
tónlistinni, þrátt fyrir að megnið af henni sé rafmagnað.
Upptökur á döbbtónlist á sjöunda áratugnum voru jafnan gerðar beint ( e. Live ) inná plöturnar.
Það gerði það að verkum að það var undir hljóðmanninum á bak við mixborðið komið hvort að upptakan heppnaðist vel eða ekki.
Ef að hljóðmaðurinn var flinkur á mixborðið varð til góð döbb tónlist, annars ekki.

Upphafið

Líkt og Reggí á döbbið á rætur sínar að rekja til tónlistastefnanna ska og rocksteady,
en þær voru vinsælar í lok sjöunda áratugarins. Upphaf döbbsins sjálfs má síðan rekja til atviks sem átti sér staði
í Kingston,höfuðborg Jamaica, árið 1968. Þá var Ruddy Redwood skemmtanastjóri ( e. Sound System operator )
staddur í Tresure Island Stúdíóinu hjá Duke Reid, sem var á þeim tíma einn af aðal skemmtanastjórum
og framleiðendum á Jamaica.
Redwood var kominn í stúdíóið til að endurblanda plötu fyrir fjöldaskemmtun ( e. Sound System) sem hann var
að fara að spila á um kvöldið. Hljóðverkfræðingurinn Byron Smith, sem vann í stúdíóinu, gerði þau mistök
að sleppa söngnum í upptökunni sem Redwood kom með. Þegar Redwood heyrði síðan upptökuna án söngs ákvað að prófa
að halda henni þannig til þess að spila hana um kvöldið. Þegar hann síðan spilaði útgáfuna af laginu með engum söng
um kvöldið voru viðbrögð fólksins á klúbbnum það góð að þau fóru að syngja textann yfir sönglausu útgáfuna.
Fólkinu líkaði lagið svo vel að Redwood endaði með því að spila þessa útgáfu af laginu, sem var ekki langt,
í um klukkustund. Byron Lee,starfsmaður í Tresure Island Stúdíóinu ,hafði orðið vitni af þessum atburði og
fór strax daginn eftir og sagði King Tubby frá. Hann sagði að Tubby yrði að fara að blanda lög án söngs því
að fólkið virtist elska það.King Tubby var rafmagnsverkfræðingur sem hafði unnið við að gera við sjónvörp og útvörp á sjöunda áratugnum
sem og að vinna við hin ýmsu hljóðmannsstörf í Tresure Island Stúdíóinu. Um 1968 var hann búin að koma sér upp
fullkomnu hljókerfi sem hann kallaði Home Town Hi-Fi og um leið og hann heyrði fréttirnar af vinsældum tónlistar án söngs
fór hann að fikta við að blanda slíka tónlist því að hann hafði góða aðstöðu til þess með hljóðkerfinu sínu.


1970 – 1980

Árið 1972 kom King Tubby sér upp litlu stúdíói í Waterhouse hverfinu í Kingston  þar sem hann byrjaði að taka upp tónlist með tónlistarmönum á borð við Bunny Lee og Lee Scratch Perry. Það sem gaf Tubby forskot í þessari nýu tegund tónlistar var að hann bjó sér til heimagerðan mixer sem var mun tæknivæddari er þeir mixerar sem þeir sem voru í samkeppni við hann notuðu. Í gegnum heima tilbúna mixerinn gat hann t.d. spilað margskonar effecta sem  áttu síðar eftir að einkenna döbbtónlist.  Í upptökum á fyrstu plötunni sem Tubby gaf út notaði hann mixerinn eins og hljóðfæri og „spilaði“ á hann beint inná upptökuna.  Árið 1973 gaf King Tubby ásamt Lee Scratch Perry út fyrstu döbb plötuna sem hét „Blackboard Jungel“.   Fljótlega eftir að tónlistarstefnan var orðið vinsæl í upphafi áttunda áratugarins myndaðist hefð fyrir því að döbb útgáfa af Reggí lögum væri á B-hliðinni á 45 RPM ( hringir hverja sek. ) plötum sem innihéldu aðeins eitt lag á hverri hlið smáskífunnar. Þá kom það stundum fyrir að B- hliðin varð vinsælli en A-hliðin.

Þróun stefnunnar var mikil þegar líða fór á áttunda áratuginn og fljótlega uppúr 1975 verður þessi undirstefna Reggí tónlistar hægt og rólega að sjálfsæðari tónlistarstefnu þökk sé King Tubby og félögum.

1980 - 1990

Með hinum tæknivædda áttunda áratug færðust vinsældir döbbsins til Bretlandseyja og víðar um Evrópu. Við tóku breskir tónlistarmenn sem að mynduðu nýja kynslóð af döbbi sem stundum er nefnd digidöbb ( digitadöbb). Það sem tækni níunda áratugarins hafði í för með sér voru ýmsar nýungar í gerð á döbbtónlist.  Tónlistarmennirnir gátu nú búið til sína eigin og upprunalegu döbbtónlist óháð öðrum upptökum. Þ.e.a.s. að hljómsveitir voru orðinn óþarfa hlekkur í gerð tónlistarinnar. Það voru síðan tónlistarmenn á borð við Adrian Sherwood og Mad Professor sem að gerðu döbbtónlist virkilega vinsæla í Bretlandi um miðjann níunda áratuginn og lögðu grunninn að tónlistarsefnunum Dubstep og Jungle sem áttu eftir að taka við af döbbinu í upphafi tíunda áratugarins.
  1. http://www.jahsonic.com/Dub.html