[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

1347

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 13. apríl 2021 kl. 21:48 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. apríl 2021 kl. 21:48 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög) (Tók aftur breytingar 157.157.73.198 (spjall), breytt til síðustu útgáfu Sweepy)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Ár

1344 1345 134613471348 1349 1350

Áratugir

1331–13401341–13501351–1360

Aldir

13. öldin14. öldin15. öldin

Karl af Blois tekinn höndum í Bretónska erfðastríðinu.
Útbreiðsla Svarta dauða um miðja 14. öld.

Árið 1347 (MCCCXLVII í rómverskum tölum)

Á Íslandi

[breyta | breyta frumkóða]
  • Bólusótt gekk um landið.
  • Biskupslaust varð á Íslandi um veturinn því báðir biskuparnir, Ormur Ásláksson og Jón Sigurðsson, fóru út með sama skipi úr Hvalfirði.
  • Norðlendingar rituðu Noregskonungi bréf um fjárkröfur biskupa og fleiri umkvörtunarefni, þar á meðal hve fjölmennir biskupar væru í yfirferðum sínum um landið.
  • Ólafur kláði, sonur herra Gríms Þorsteinssonar, var höggvinn. Ekki er vitað fyrir hvaða sakir.
  • Annálar greina frá því að til Íslands hafi hrakið grænlenskt skip sem siglt hafði til Marklands og á því 17 menn. Það kom í Straumfjörð á Mýrum en sigldi síðan til Noregs.

Fædd

Dáin

Fædd

Dáin