Öngulsey
Útlit
Öngulsey (ensku: Anglesey; velsku: Ynys Mon) bresk eyja í Írlandshafi við strönd Wales. Hún er 705 km² með nálægri smáeyju, Holy Island.
Tvær brýr tengja eyjarnar og Wales. Um Öngulsey liggur aðalumferðaræðin milli Englands og Írlands og frá Holy Island gengur ferja til Dyflinnar. Eyjan hét áður (á tímum Drúída) Móna.
Minnst er á Öngulsey t.d. í Færeyinga sögu:
- Og að áliðnu sumri koma þeir skipum sínum undir Öngulsey; hún liggur í Englandshafi.
og Heimskringlu:
- Síðan hélt Magnús konungur liðinu til Bretlands. En er hann kom í Öngulseyjarsund þá kom þar mót honum her af Bretlandi og réðu jarlar tveir fyrir, Hugi prúði og Hugi digri, og lögðu þegar til orustu.