[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

bók

Pending
Úr Wikiorðabók, frjálsu orðabókinni

Íslenska


Fallbeyging orðsins „bók“
Eintala Fleirtala
án greinis með greini án greinis með greini
Nefnifall bók bókin bækur bækurnar
Þolfall bók bókina bækur bækurnar
Þágufall bók bókinni bókum bókunum
Eignarfall bókar bókarinnar bóka bókanna
Önnur orð með sömu fallbeygingu
[1] Bækur

Nafnorð

bók (kvenkyn); sterk beyging

[1] safn blaða fest saman í band, oftast í umgjörð sem er sterkari en efnið í blöðunum (og kallast umgjörðin þá kápa). Blöðin geta m.a. verið úr skinni, pappír og pergamenti.
[2] fornt: beykitré
Orðsifjafræði
gotneska bōkōs, fornenska bēc, forníslenska bœkr
Samheiti
[1] rit, doðrantur, skrudda
Undirheiti
[1] dagbók, gestabók, hljóðbók, matreiðslubók, orðabók
Sjá einnig, samanber
[1] bókabúð, bókaverslun, bókaforlag, bókaútgáfa, bókaherbergi, bókahilla, bókasafn, bókaskápur, bókaskrá, bókavörður, bókbindari, bókfell, bókfestukenning, bókhlaða, bókhneigður, bókmál, bókmenntafræði, bókmenntagrein, bókmenntalegur, bókmenntasaga, bókmenntategund, bókmenntir, bóksali, bókstaflega, bókstafstrú, bókstafur
Orðtök, orðasambönd
[1] allt á sömu bókina lært
[1] bera saman bækur sínar
[1] læra/kunna eitthvað utan bókar
[1] standa eins og stafur á bók
Dæmi
[1] „Í fyrstu var bókin notuð til að geyma allskyns hversdagslegar skrár og upplýsingar, tengdar verslun og viðskiptum eins og bók-hald enn þann dag í dag“ (VísindavefurinnWikiorðabók:Bókmenntaskrá#Vísindavefurinn: Hvað er bók og til hvers skrifum við bækur?)

Þýðingar

Tilvísun

Bók er grein sem finna má á Wikipediu.
Icelandic Online Dictionary and Readings „bók