Meginvextir SÍ

Seðlabankinn framkvæmir peningastefnuna einkum með því að hafa áhrif á vexti á peningamarkaði, fyrst og fremst í gegnum ákvörðun vaxta í viðskiptum sínum við lánastofnanir, sem síðan hafa áhrif á aðra markaðsvexti. Meginvextir (stundum kallaðir stýrivextir) Seðlabankans eru þeir vextir í þessum viðskiptum við lánastofnanir sem ráða mestu um framvindu skammtímavaxta á markaði og þar með aðhaldsstigi peningastefnunnar. Þessir vextir eru nú vextir á sjö daga bundnum innlánum lánastofnana í Seðlabankanum.

 

Meginvextir (stýrivextir)

Það getur verið breytilegt frá einum tíma til annars hvaða vextir Seðlabankans hafa mest áhrif á aðra skammtímavexti og teljast þar með meginvextir hans. Fyrir fjármálakreppuna haustið 2008 voru meginvextir bankans vextir á lánum Seðlabankans gegn veði til lánastofnana, þ.e. svokölluð veðlán. Eftir fjármálakreppuna hefur eftirspurn lánastofnana eftir fyrirgreiðslu frá Seðlabankanum hins vegar verið takmörkuð og lánastofnanir lagt þeim mun meira inn á reikninga í bankanum. Því hafa vextir á innlánsformum bankans verið áhrifameiri um vaxtaþróun á peningamarkaði frá árinu 2009.

Hér fyrir neðan eru gögn um vexti Seðlabankans og með því að smella á „Skoða gögn“ má nálgast upplýsingar um fleiri vaxtaraðir.

Vextir miðast við nafnvexti sbr. vaxtatilkynningu 20. nóvember 2024.


Peningastefnunefnd ákvað að samræma birtingu vaxta þannig að allir vextir verði framvegis birtir sem nafnvextir. Breytingin tók gildi 20. nóvember 2024 og hefur eingöngu áhrif á vexti á viðskiptareikningum í Seðlabankanum.

Yfirlit yfir meginvexti Seðlabanka Íslands
Tímabil:
Meginvextir:
Til og með 7. apríl 2009
Vextir á lánum gegn veði
8. apríl 2009 til 29. september 2009
Vextir á viðskiptareikningum
30. september 2009 til 20. maí 2014
Einfalt meðaltal vaxta á viðskiptareikningum og hámarksvaxta á innstæðubréfum með 28 daga binditíma
Frá 21. maí 2014
Vextir á 7 daga bundnum innlánum

Umsjón

Markaðssvið | midvinnsla@sedlabanki.is

 

Bankavextir og dráttarvextir

Seðlabanki Íslands birtir mánaðarlega tilkynningu um dráttarvexti og vexti af peningakröfum samkvæmt lögum nr. 38/2001. Að auki birtir Seðlabankinn mánaðarlegt yfirlit yfir helstu vexti eins og þeir voru í lok hvers mánaðar.

Hér að ofan má m.a. finna vexti til viðmiðunar vegna umreiknings á lánum skv. 18. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu með síðari breytingum í lögum nr. 151/2010.

Mánaðarlegar vaxtatilkynningar (tilkynningar um dráttarvexti og vexti af peningakröfum) má finna á síðunni Fréttir og tilkynningar.

Dráttarvextir
Frá 01.12.2416,25%

Lýsigögn

Lýsigögn fyrir bankavexti, dráttarvexti og almenna vexti af peningakröfum.

Umsjón

Upplýsingatækni og gagnasöfnun, Fjármálamarkaðir | adstod@sedlabanki.is

 

Markaðsvextir

Vextir á millibankamarkaði með krónur (%)

Seðlabankinn hættir skráningu 9 og 12 mánaða REIBOR-vaxta

Seðlabankinn hætti skráningu 9 og 12 mánaða vaxta á millibankamarkaði með krónur (REIBOR) 1. júlí 2020. Frétt þess efnis má sjá hér á  vefsíðu Seðlabanka Íslands.

 

Vaxtaviðmið í íslenskum krónum (IKON)

Seðlabankinn reiknar út og hefur birt IKON vaxtaviðmið (Icelandic Króna OverNight), sem eru vextir á ótryggðum innlánum hjá upplýsingaskyldum aðilum í viðskiptum í íslenskum krónum til einnar nætur (O/N), daglega frá 1. apríl 2022. Vextirnir eru reiknaðir út frá samningum sem fjármálafyrirtækin gera við viðskiptavini sína þegar tekið er við innstæðum á föstum kjörum í fastar tímalengdir. IKON vextir eru ólíkir REIBOR-vöxtum að því leyti að þeir byggja á raunverulegum viðskiptum en ekki á tilboðum líkt og REIBOR-vextirnir.

Nánari upplýsingar um vextina er að finna á svæði markaðsviðskipta.

IKON vextir
20.12.20248,157%
 
Skoða gögn

Sýna allt

  • Leiðrétting

Umsjón

Markaðsviðskipti| framlina@sedlabanki.is

 

Upplýsingar um vexti erlendis

Þar sem nokkuð hefur verið um fyrirspurnir til Seðlabanka Íslands um vexti erlendis og þá einkum um LIBOR-vexti, má sjá upplýsingar  á heimasíðu International Exchange Benchmark Administration. Seðlabanki Íslands ber hins vegar enga ábyrgð á upplýsingum sem er að finna á slíkum vefsíðum eða notkun aðila á þeim auk þess sem minnt er á almennan fyrirvara um áreiðanleika upplýsinga á vefnum.

 

Ennfremur má nálgast skýringar á fleiri hugtökum á síðunni Hugtök og skýringar.