„Siglingar“: Munur á milli breytinga
Efni eytt Efni bætt við
Ekkert breytingarágrip |
Bjarga 1 heimildum og merki 0 sem dauðar.) #IABot (v2.0.8 |
||
(18 millibreytinga eftir 12 notendur ekki sýndar) | |||
Lína 1:
[[File:Hro 20100105 2075802670.jpg|thumb|300px|[[Hanse Sail]], [[Rostock]]]]
[[Mynd:Tacking_near_Britannia_Bridge.jpg|thumb|right|Seglskútur í kappsiglingu umhverfis [[Anglesey]] árið [[1998]].]]
[[Mynd:TTSRSzczecin17.jpg|thumb|Úrslit af ''The Tall Ships’ Races'' 2007 í [[Szczecin]], Pólland]]
'''Siglingar''' eru sú [[íþrótt]] að sigla [[seglskip]]i með því að haga [[seglbúnaður|seglbúnaði]], [[stýri]] og [[kjölur|kili]] þannig að kraftur [[vindur|vindsins]] sé nýttur til að stjórna bátnum og knýja hann áfram. Góðir siglingamenn hafa reynslu af viðbrögðum í ýmsum [[veður|veðrum]] og [[sjólag]]i og þekkingu á seglskipum. Siglingar eru í dag einkum stundaðar sem [[afþreying]] sem skipta má í grófum dráttum í [[kappsigling]]ar og [[skemmtisigling]]ar. Siglingakeppnir eru haldnar í [[kjölbátur|kjölbátasiglingum]], sem skiptast í úthafssiglingar og strandsiglingar, og [[kænusiglingar|kænusiglingum]] á minni [[kæna|kænum]].
Keppt er í að sigla seglbáti tiltekna leið á sem stystum tíma. Bátarnir eru af ýmsum stærðum og gerðum og er skipt í tvo aðalflokka, kjölbáta (með föstum kili) og kænur (með lausum kili). Siglingaleiðir eru mislangar, gjarnan þríhyrnings- eða trapisulaga og afmarkaðar með baujum. Í blönduðum keppnum er gjarnan notast við [[forgjöf|forgjafarkerfi]] til að jafna ólíkar gerðir báta.
Siglingar hafa haft gríðarmikla þýðingu fyrir þróun [[siðmenning]]ar. Elstu myndir af segli eru frá [[Kuwait]]i frá því um 3500 f.Kr. Þróun seglskipa gerði [[Evrópa|Evrópumönnum]] á [[15. öldin|15. öld]] kleift að fara í langa könnunarleiðangra og sigla um svæði þar sem óveður eru tíð. ▼
==Saga==
▲Siglingar hafa haft gríðarmikla þýðingu fyrir þróun [[siðmenning]]ar. Elstu myndir af segli eru frá [[
Talið er að siglingar verði að íþrótt á 17. öld. Fyrsta siglingakeppnin fór fram 1661 á Englandi og fyrsti siglingaklúbburinn var stofnaður 1775. Fyrstu bátarnir voru kjölbátar, en síðar byrjuðu Hollendingar að smíða báta sem ekki voru eins djúpristir og því hægt að sigla þeim á vötnum. Slíkur bátur er [[Flying Dutchman]] (Hollendingurinn fljúgandi), sem byrjað var að smíða um 1950.
Siglingar eru [[vatnaíþróttir|vatnaíþrótt]] og urðu [[Ólympíugrein]] á [[Sumarleikarnir 1900|Sumarleikunum 1900]]. Flest nútímaseglskip eru [[slúppa|slúppur]] með eitt mastur, eitt [[stórsegl]] og eitt [[framsegl]] en stór fjölmastra seglskip eru oftast rekin sem [[skólaskip]] til að þjálfa [[sjómaður|sjómenn]] í [[floti|flotadeildum]] [[her]]ja eða [[sjómannaskóli|sjómannaskólum]] eða notuð sem [[leikmynd]] fyrir [[kvikmynd]]ir.
==Siglingar á Íslandi==
{{wikivitnun}}▼
Á Íslandi hafa siglingar verið stundaðar frá upphafi vega. Árabátaútgerðin reiddi sig ekki síður á segl en árar og með þilskipaútgerð á 18. öld komust stærri seglskútur í eigu Íslendinga. Undir lok 19. aldar stunduðu íslenskar útgerðir fiskveiðar með stórum tvímastra [[kútter]]um en upp úr aldamótunum tóku vélarnar við á bæði stærri skipum og minni bátum. [[Reiðabúnaður]] var samt áfram algengur öryggisbúnaður ef vélin bilaði.
{{stubbur|siglingar}}▼
Þegar farið var að ræða um skipulega iðkun [[íþrótt]]a á Íslandi upp úr miðri 19. öld voru siglingar meðal þeirra íþróttagreina sem taldar voru hentugar fyrir íslenskar aðstæður, ásamt kappróðrum, kappreiðum og glímu. Fyrsta skipulega kappsiglingin sem sögur fara af var haldin í tengslum við héraðshátíð Eyfirðinga á [[Akureyri]] 1890. Eins var keppt í siglingum á þjóðhátíð Reykvíkinga 2. ágúst 1898. Þrír bátar þreyttu keppni í Víkinni. Keppnin þótti takast illa, bátarnir voru ekki rétt búnir og alls kyns óhöpp urðu.
Kappsiglingar á kænum voru stundaðar að einhverju marki á millistríðsárunum og fyrsti siglingaklúbburinn var Yachtklúbbur Reykjavíkur sem var stofnaður árið 1944, en hann varð skammlífur. Á Akureyri var farið að stunda kappsiglingar skipulega á 6. áratug 20. aldar á Pollinum og [[Nökkvi (félag)|Sjóferðafélag Akureyrar]], síðar kallað Nökkvi, var stofnað árið 1963. Ári áður var siglingaklúbburinn Siglunes stofnaður í [[Fossvogur|Fossvogi]] af [[Æskulýðsráð Reykjavíkur|Æskulýðsráði Reykjavíkur]] og [[Æskulýðsráð Kópavogs|Æskulýðsráði Kópavogs]]. [[Siglingaklúbburinn Óðinn]] var stofnaður í kringum kjölbátasiglingar í Kópavogi 1965. Ungt fólk sem lærði siglingar í Siglunesi stofnaði síðan fyrstu siglingafélögin á höfuðborgarsvæðinu, [[Siglingafélag Reykjavíkur, Brokey]] og [[Siglingafélagið Ýmir|Siglingafélagið Ými]] í Kópavogi, árið 1971. Þessi fjögur félög, Brokey, Óðinn, Ýmir og Sjóferðafélag Akureyrar, stofnuðu [[Siglingasamband Íslands]] árið 1973. Næstu ár voru stofnuð siglingafélög í [[Garðabær|Garðabæ]] (Vogur), [[Hafnarfjörður|Hafnarfirði]] ([[Siglingaklúbburinn Þytur]]), [[Ísafjörður|Ísafirði]] ([[Sæfari (félag)|Sæfari]]) og [[Keflavík]] (Knörr), en bæði Vogur og Knörr lögðu síðar upp laupana. [[Ungmennafélagið Snæfell]] í [[Stykkishólmur|Stykkishólmi]] hóf siglingaþjálfun árið 2006 og árið 2009 var [[Siglingaklúbburinn Drangey]] stofnaður á [[Sauðárkrókur|Sauðárkróki]].
Íslendingar tóku fyrst þátt í keppni í siglingum á [[Sumarólympíuleikarnir 1984|Sumarólympíuleikunum 1984]] og [[Sumarólympíuleikarnir 1988|1988]] á [[470 (kæna)|470-kænu]]. [[Hafsteinn Ægir Geirsson]] keppti á [[Laser]] á [[Sumarólympíuleikarnir 2000|Sumarólympíuleikunum 2000]] og [[Sumarólympíuleikarnir 2004|2004]].
== Ítarefni ==
[http://www.museum.is/default.asp?sid_id=21216&tre_rod=001|004|002|001|003|&tId=1 Saga keppnisgreina - Safnasvæðið á Akranesi] {{Webarchive|url=https://web.archive.org/web/20070927142957/http://www.museum.is/default.asp?sid_id=21216&tre_rod=001%7C004%7C002%7C001%7C003%7C&tId=1 |date=2007-09-27 }}
▲{{wikivitnun}}
▲{{stubbur|siglingar}}
[[
|