Sabrina Lloyd
Sabrina Lloyd (fædd, 20. nóvember 1970) er bandarísk leikkona sem er þekktust fyrir hlutverk sín í Sliders, Sports Night og Numb3rs.
Sabrina Lloyd | |
---|---|
Fædd | Sabrina Lloyd 20. nóvember 1970 |
Ár virk | 1988 - |
Helstu hlutverk | |
Wade Welles í Sliders Natalie Hurley í Sports Night Terry Lake í Numb3rs |
Einkalíf
breytaLloyd er fædd í Fairfax í Virginíu en er alin upp í Eustis á Flórída. Hún byrjaði að leika tólf ára í uppfærslunni af Annie sem Pepper og kom hún síðan fram í hverfisleikhúsum á borð við: Baystreet Players í Eustis og Ice House Theater í Mt. Dora. Þegar Lloyd var fimmtán ára þá fór hún sem skiptinemi til Brisbane í Ástralíu þar sem hún bjó í ár. Þar fékk hún leiklistarþjálfun við Brisbane Royal Theatre Company. Lloyd fluttist til New York þegar hún var átján ára til að koma sér áfram sem leikkona.
Ferill
breytaFyrsta hlutverk Lloyd var í sjónvarpsþættinu Superboy árið 1988. Síðan þá hefur komið fram sem gestaleikari í þáttum á borð við: Law and Order og Ed. Árið 1995 þá var Lloyd boðið hlutverk í Sliders sem Wade Welles sem hún lék til ársins 1999. Síðan árið 1998 þá var henni boðið hlutverk í Sports Night sem Natalie Hurley sem hún lék til ársins 2000. Lloyd lék FBI atferlisfræðinginn Terry Lake í fyrstu þáttaröðinni af Numb3rs. Hefur Lloyd komið fram í kvikmyndum á borð við: That Night, On Edge, Something for Henry, The Girl from Monday og Universal Signs.
Kvikmyndir og sjónvarp
breytaKvikmyndir | |||
---|---|---|---|
Ár | Kvikmynd | Hlutverk | Athugasemd |
1992 | Chain of Desire | Melissa | |
1992 | That Night | Jeanette | |
1993 | Father Hood | Kelly Charles | |
1998 | Live Free and Die | ónefnt hlutverk | |
2001 | On Edge | Becky Brooks | |
2001 | Wanderlust | Amanda | |
2003 | Dopamine | Sarah McCaulley | |
2004 | Something for Henry | Anna | |
2004 | Melinda and Melinda | ónefnt hlutverk | óskráð á lista |
2004 | The Breakup Artist | Kara | |
2005 | The Girl from Monday | Cecile | |
2005 | Charlie´s Party | Sarah | |
2006 | The Last Request | Cathy | |
2007 | Racing Daylight | Vicky Palmer/Helly | |
2008 | Universal Signs | Mary | |
2010 | Hello Lonesome | Debby | |
Sjónvarp | |||
Ár | Titill | Hlutverk | Athugasemd |
1988 | Superboy | Betsy | Þáttur: Bringing Down the House |
1989 | Molly | Still the Beaver | Þáttur: Shortcuts |
1992 | Law and Order | Kate ´Katie´ Silver | Þáttur: Intolerance |
1993 | CBS Schoolbreak Special | Sarah Thompson | Þáttur: Love Off Limits |
1994 | Lifestories: Families in Crisis | Heidi Leiter | Þáttur: More Than Friends: The Coming Out of Heidi Leiter |
1995-1999 | Sliders | Wade Welles | 48 þættir |
1998-2000 | Sports Night | Natalie Hurley | 45 þættir |
2000 | Madigan Men | Wendy Lipton | 5 þættir |
2002 | Couples | Annie | Sjónvarpsmynd |
2003 | Ed | Frankie Hector | 11 þættir |
2004 | DeMarco Affairs | Jessica DeMarco | Sjónvarpsmynd |
2004 | My Sexiest Mistake | Amy | Sjónvarpsmynd |
2005 | Numb3rs | Terry Lake | 13 þættir |
2008 | Wainy Days | Molly | Þáttur: Molly |
Verðlaun og tilnefningar
breytaScreen Actors Guild Awards
- 2000: Tilnefning fyrir besta leikhóp í grínseríu fyrir Sports Night
Tilvísanir
breytaHeimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Sabrina Lloyd“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 14. september 2011.
- Sabrina Lloyd á IMDb