Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands er ríkisstofnun sem fer með stjórn peningamála á Íslandi og eftirlit með fjármálafyrirtækjum. Meginmarkmiðið með stjórn peningamála er stöðugleiki í verðlagsmálum, en einnig að stuðla að framgangi meginmarkmiða efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Jafnan er stefnt að því að halda verðbólgu og atvinnuleysi lágu. Seðlabankastjóri er Ásgeir Jónsson, en Rannveig Sigurðardóttir, Gunnar Jakobsson og Unnur Gunnarsdóttir eru varaseðlabankastjórar.
Norðmaðurinn Svein Harald Øygard var tímabundið skipaður seðlabankastjóri 27. febrúar 2009, fyrstur útlendinga til að gegna því embætti.
Seðlabanki Íslands hefur einkarétt á því að koma íslenskum peningum, það er seðlum og mynt, í umferð. Jafnframt á bankinn að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þar með talið greiðslujöfnuð í landinu og við útlönd. Seðlabankanum ber þó einnig að stuðla að framgangi meginmarkmiða efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar að svo miklu leyti sem hann telur það ekki ganga gegn meginmarkmiði hans um verðstöðugleika. Seðlabankinn á enn fremur að sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisvarasjóð.
Skipulag
breytaBankastjórn Seðlabankans er í höndum seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra og stýra þeir daglegu starfi í bankanum.
Seðlabankinn er sjálfstæð ríkisstofnun og starfar samkvæmt lögum sem Alþingi hefur sett. Forsætisráðherra skipar bankastjóra til fimm ára. Alþingi kýs sjö fulltrúa í bankaráð að loknum kosningum til Alþingis. Bankaráðið fundar að jafnaði tvisvar í mánuði og hefur meðal annars eftirlit með því að starfsemi bankans sé í samræmi við þau lög og þær reglur sem starfa ber eftir.
Seðlabanki Íslands var stofnaður með lögum árið 1961, en seðlabankastarfsemi á Íslandi á sér mun lengri sögu, áður hafði Landsbanki Íslands haft umsjón með peningamál á Íslandi. Núgildandi lög um Seðlabanka Íslands eru lög nr. 36/2001.
Árið 2011 voru tvö ný svið stofnuð innan Seðlabankans, þau nefnast fjármálastöðugleiki annars vegar og greiðslukerfi hins vegar.[1]
Hlutdeild í hruninu
breytaÁ árinu 2008 féll íslenska krónan jafnt og þétt og náði sú þróun hámarki í bankahruninu um haustið. Seðlabanki Íslands bar hér nokkra ábyrgð en frá og með 2001 hafði Fjármálaeftirlitið verið aðskilið frá bankanum til að auðvelda verkskiptingu. Þar með fækkaði lögbundnum skyldum bankans til eftirlits. Eftir sem áður var það hlutverk Seðlabankans að vera „banki bankanna” en lítill gjaldeyrisvarasjóður dró mjög úr trúverðugleika hans sem slíks.
Davíð Oddsson, sem einn þriggja bankastjóra seðlabankans, var víða gagnrýndur fyrir örlagaríkar ákvarðanir og var neyddur til þess að segja af sér árið 2009. Ríkisendurskoðun gagnrýndi útlánastefnu bankans gagnvart fjármálafyrirtækjum vegna lítilla eða engra krafna um tryggð veð. Afskrifa þurfti um 170 milljarða íslenskra króna vegna þessa.[2]
Hagfræðingarnir Phillipp Bagus og David Howden skrifðu bók sem kom út 2011. Hún nefnist: Deep Freeze Iceland´s Economic Collapse og þar halda þeir því fram að raunveruleg ástæða fyrir hruninu hafi verið slæm stefna Seðlabankans: Vextir voru of lágir, bankarnir of stórir til að falla, húsnæðislán voru með ríkisábyrgð og bankarnir tóku skammtímalán erlendis til að fjármagna langtímaskuldabréf.[3]
Seðlabankastjórar frá stofnun bankans
breyta- Jóhannes Nordal 1961-1993
- Jón G. Maríasson 1961-1967
- Vilhjálmur Þór 1961-1964
- Sigtryggur Klemensson 1966-1971
- Davíð Ólafsson 1967-1986
- Svanbjörn Frímannsson 1971-1973
- Guðmundur Hjartarson 1974-1984
- Tómas Árnason 1985-1993
- Geir Hallgrímsson 1986-1990
- Birgir Ísleifur Gunnarsson 1991-2005
- Jón Sigurðsson 1993-1994
- Steingrímur Hermannsson 1994-1998
- Finnur Ingólfsson 2000-2002
- Ingimundur Friðriksson 2002-2003
- Jón Sigurðsson: 2003-2006
- Eiríkur Guðnason: 1994-2009
- Davíð Oddsson: 2005-2009
- Ingimundur Friðriksson: 2006-2009
- Svein Harald Øygard: 2009-2009
- Már Guðmundsson: 2009-2019
- Ásgeir Jónsson 2019-[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ Tvö ný svið innan Seðlabankans
- ↑ „Endurskoðun Ríkisreiknings 2008“ (PDF). desember 2009.
- ↑ Deep Freeze; Íslenska hrunið í boði Seðlabankans; grein af Vísi.is 4. mars 2011
- ↑ Sedlabanki.is, „Bankastjórn frá upphafi“ (skoðað 25. ágúst 2019)
Tenglar
breytaVísindavefurinn
- „Fyrir hverja og hvaða fjármagn gildir sú ákvörðun, þegar Seðlabanki Íslands tekur ákvörðun um vexti?“. Vísindavefurinn.
- „Þegar Seðlabankinn kaupir krónur, hver er það sem selur honum?“. Vísindavefurinn.
Fjölmiðlar
- Seðlabankinn afnam bindiskyldu erlendra útibúa í mars; grein af Vísi.is 19. nóv. 2008 Geymt 27 september 2011 í Wayback Machine
- Meira tjón en hlýst af Icesave; af Vísi.is 11. des. 2009
- Tjón af lánum til fjármálafyrir- tækja minna ef Seðlabankinn hefði brugðist fyrr við; af Eyjunni 11. des. 2009 Geymt 14 desember 2009 í Wayback Machine
- Seðlabankinn stóð ekki vaktina. Bankar fóru offorsi í gjaldeyriskaupum. Fóru gegn landi og þjóð; af Eyjunni.is 12.3 2010 Geymt 14 mars 2010 í Wayback Machine
- Davíð: Bjargaði vísakortum landsmanna; grein af Vísi.is 12. apríl 2010
- Seðlabankinn gleymdi að framlengja lánalínu; grein af DV.is 12. apríl 2010 Geymt 28 maí 2010 í Wayback Machine
- Vaxtaákvarðanir Seðabankans fyrir hrun byggðar á óskhyggju; af Vísi.is 13. apríl 2010 Geymt 28 september 2011 í Wayback Machine
- Davíð Oddsson: Rannsóknarefni hvort Glitnismenn settu á svið mikið sjónarspil fyrir fall bankans; grein af Eyjunni.is 25.4 2010 Geymt 27 apríl 2010 í Wayback Machine
- Þegar gengið var fest í sólarhring; grein af Eyjunni.is 27. okt 2010 Geymt 4 nóvember 2010 í Wayback Machine
- Deep Freeze: íslenska hrunið í boði Seðlabankans; grein af Vísi.is 4. mars 2011