Ragnar Lár
Ragnar Lárusson (13. desember 1935 – 31. desember 2007), þekktur sem Ragnar Lár, var íslenskur myndlistarmaður, bókaskreytingarmaður og auglýsingahönnuður. Hann er þekktastur fyrir skopmyndir sínar sem birtust í Þjóðviljanum („Láki og lífið“), Vísi og Dagblaðinu („Boggi blaðamaður“) og mánaðarritinu Speglinum, og myndskreyttar barnabækur eins og Mola litla. Hann myndskreytti einnig fjölda bóka eftir aðra höfunda.
Helstu verk
breyta- (1965) Láki og lífið - safn skopmynda sem höfðu birst í Þjóðviljanum
- (1968-1975) Moli litli - 7 bindi
- (1969) Valdemar víkingur - birtist áður sem myndasaga í Stundinni okkar
- (1975) Nýja fótboltaspilið - borðspil
- (1989) Boggi: 50 frumreglur í golfleik