Matterhorn
Matterhorn (Ítalska: Monte Cervino, franska: Mont Cervin), er fjall í Ölpunum, á mörkum Sviss og Ítalíu. Fjallið er 4478 metra hátt og er píramídalaga. Það er 6. hæsta fjall Alpanna. Aðalbergtegund fjallsins er gneis. Matterhorn var fyrst klifið árið 1865 af sjö mönnum. Fjórir þeirra létust á leið niður.
Heimild
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Matterhorn.
Fyrirmynd greinarinnar var „Matterhorn“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 17. október 2016.