Juventus FC
Juventus Football Club S.p. A einnig þekkt sem Juventus Torino, Juventus F.C., Juventus eða einfaldlega Juve, er knattspyrnulið frá Tórínó á Ítalíu, stofnað árið 1897. Liðið hefur unnið til 36 meistaratitla og 13 bikara í heimalandinu og er sigursælasta liðið þar. Juventus varð sigurvegari Meistaradeildar Evrópu tímabilin 1984–85 og 1995–96. Árin 2012-2020 vann liðið 9 meistaratitla í röð og síðustu 2 árin einnig ítalska bikarinn. Árið 2006 var liðið dæmt niður um deild vegna spillingarmála.
Juventus Football Club S.p. A | |||
Fullt nafn | Juventus Football Club S.p. A | ||
Gælunafn/nöfn | La Vecchia Signora, Madama (Gamla konan) La Fidanzata d'Italia (Kærasta Ítalíu) I bianconeri (Hinir svart-hvítu) Le zebre (Sebrarnir) „Juve“ | ||
---|---|---|---|
Stofnað | 1. nóvember 1897 | ||
Leikvöllur | Allianz Stadium, Tórínó | ||
Stærð | 41.507 | ||
Stjórnarformaður | Andrea Agnelli | ||
Knattspyrnustjóri | Massimiliano Allegri | ||
Deild | Serie A | ||
2021-22 | 4. sæti | ||
|
Gianluigi Buffon, Alessandro Del Piero, Andrea Pirlo og Cristiano Ronaldo eru nú meðal þekktustu leikmanna liðsins.
Hlutfallslega hefur liðið lagt mest til ítalska landsliðsins í knattspyrnu í gegnum árin. [1]
Titlar
breytaTitill | Fjöldi | Ár |
---|---|---|
Ítalska A-deildin | 36 | 1905, 1925–26, 1930–31, 1931–32, 1932–33, 1933–34, 1934–35, 1949–50, 1951–52, 1957–58, 1959–60, 1960–61, 1966–67, 1971–72, 1972–73, 1974–75, 1976–77, 1977–78, 1980–81, 1981–82, 1983–84, 1985–86, 1994–95, 1996–97, 1997–98, 2001–02, 2002–03, 2004-05, 2005-06, 2011–12, 2012–13, 2013–14, 2014–15, 2015–26, 2016–17, 2017–18, 2018-19, 2019-20 |
Serie B | 1 | 2006–07 |
Coppa Italia | 11 | 1937–38, 1941–42, 1958–59, 1959–60, 1964–65, 1978–79, 1982–83, 1989–90, 1994–95, 2016-17, 2017-18 |
Supercoppa italiana di calcio | 6 | 1995, 1997, 2002, 2003, 2012 |
Meistaradeild Evrópu | 2 | 1984–85, 1995–96 |
Evrópukeppni bikarhafa | 1 | 1983–84 |
Evrópukeppni félagsliða | 3 | 1977, 1990, 1993 |
Evrópski ofurbikarinn | 2 | 1984, 1996 |
UEFA Intertoto Cup | 1 | 1999 |
HM Félagsliða | 2 | 1985, 1996 |
Litir og gælunöfn
breytaLitirnir á búningum Juventus eru svartar hvítar rendur. þeir hafa notað þessa liti síðan árið 1903, fyrstu árin spiluðu þeir í bleikum treyjum og svörtum stuttbuxum. Juventus hefur ýmis gælunöfn m.a : la Vecchia Signora (gamla daman) og la Fidanzata d'Italia (kærasta ítalíu), i bianconeri (þeir svört og hvítu), le zebre (sebra-hestarnir), það er tilvísun í treyjur félagsins sem eru svart-hvít röndóttar.
Þekktir leikmenn
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Ótrúleg sigurganga Juventus Rúv, skoðað 14. maí, 2018.