Blágóma
Blágóma (fræðiheiti Anarhichas denticulatus) er steinbítstegund sem er svipuð að stærð og hlýri.
Blágóma | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Anarhichas denticulatus Krøyer, 1845[1] | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Anarhichas latifrons Steenstrup & Hallgrimsson, 1876 |
Útlit
breytaHún er gildvaxinn og allhár fiskur og með sérkennilega breitt enni og stóran haus, frekar lítinn munn sem er aðeins á ská. Hún er sótrauð, dökkrauðblá eða blágrænleit á lit með oddhvassar og litlar tennur. Hún er lausholda og kvapmikil.
Blágóman er kaldsjávarfiskur og finnst á 60 – 1200 metra dýpi og getur orðið allt að 144 cm löng. Fæðan er slöngustjörnur, skrápdýr, hveljur og fiskar.
Matreiðsla
breytaAlmenn trú hefur verið á því að blágóma hyrfi við suðu og væri því ekki nothæfur matfiskur en mælingar sjávarútvegsfræðinema við Háskólann á Akureyri vorið 2013 sýna að fiskurinn rýrnar við eldun aðeins um 30%.
Blágóma reyndist því vænsti fiskur til matar, mjög lík hlýranum á bragðið. Sjávarútvegsfræðingar bjuggu til dæmis til plokkfisk úr blágómunni sem var settur á brauð, eins konar blágómu tartar. Oft er blágóman þó mjög stór og of stór til að það sé hægt að búa til úr henni hefðbundna sjávarrétti þar sem flökin eru mjög þykk.
Blágóman er feitur fiskur eins og hlýri og steinbítur eða í kringum 4 – 5% fituinnihald. Því er hægt að skoða uppskriftir af hlýra og steinbít og heimfæra þær uppskriftir yfir á blágómuna.
Stofnstærð
breytaSjómenn hafa almennt hent blágómunni aftur í hafið vegna þess misskilnings að blágóman væri óæt og því hefur aldrei tekist að mæla hversu mikið magn af henni hverfur aftur í hafinu kringum Ísland. Umtalsvert af blágómu kemur sem meðafli sérstaklega í djúpsjávarveiðum. Frystitogararnir hjá Brimi og Granda hafa gert tilraunir með að landa hausaðri Blágómu og aflinn hefur verið allt að fimm tonn á ári.
Verð á Blágómu
breytaVerð fyrir frosna hausaða blágómu er um 1,1 bandaríkjadollara á kíló eða í kringum 140 ísl. krónur á kíló. Blágóman fer á markað í Austur-Evrópu.
Tenglar
breyta- ↑ 1,0 1,1 „WoRMS - World Register of Marine Species - Anarhichas denticulatus Krøyer, 1845“. marinespecies.org.
Blágóma (Heimaslóð.is)