Borgarstjórn Reykjavíkur
Borgarstjórn Reykjavíkur er lýðræðislegur vettvangur kjörinna fulltrúa íbúa Reykjavíkurborgar. Borgarstjórn ber ábyrgð því að framfylgja þeim málefnum sem ríkið hefur falið sveitarstjórnum.
Borgarstjórn skipar borgarstjóra og skipar í nefndir á sínum vegum sem sjá um daglegan rekstur borgarinnar. Fulltrúar í borgarstjórn kallast borgarfulltrúar og eru 23 talsins. Kosið er til borgarstjórnar í almennum kosningum á fjögurra ára fresti, þannig ekki er hægt að kjósa aftur áður en kjörtímabil er liðið líkt og með Alþingi. Reglulegir fundir borgarstjórnar fara fram á fyrsta og þriðja þriðjudegi hvers mánaðar.[1]
Völd borgarstjórnar
breytaSamkvæmt 8. grein sveitarstjórnarlaga fer borgarstjórn með stjórn Reykjavíkurborgar samkvæmt ákvæðum þeirra og annarra laga. Stjórnin hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna borgarinnar og sér um framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast. Höfuðmaður borgarstjórnar og framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar er borgarstjóri sem skipaður er af stjórninni.[2]
Núverandi
breytaEllefu framboðslistar voru í kjöri í borgarstjórnarkosningum 14. maí 2022. Þeir voru: B-listi Framsóknarflokks, C-listi Viðreisnar, D-listi Sjálfstæðisflokks, E-listi Reykjavík - besta borgin, F-listi Flokks fólksins, J-listi Sósíalistaflokks Íslands, M-listi Miðflokksins, P-listi Pírata, S-listi Samfylkingarinnar, V-listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Y-listi Ábyrgrar framtíðar.
Sjálfstæðisflokkur hlaut 6 borgarfulltrúa, Samfylking 5, Framsóknarflokkur 4, Píratar 3, Sósíalistaflokkur Íslands 2, Viðreisn 1, Flokkur fólksins 1 og Vinstrihreyfingin grænt framboð 1. Næsti maður inn væri fimmti fulltrúi Framsóknarflokks á kostnað Sósíalistaflokkur Íslands, en munaði 319 atkvæðum þar á. Vantaði Miðflokknum 843 atkvæði til að ná manni inn[3]. Önnur framboð fengu innan við 1% atkvæða. Fyrsti fundur nýrrar borgarstórnar var haldinn 7. júní 2022.
Þann 6. júní 2022 var kynntur nýr meirihluti Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar sem samtals hlutu 13 borgarfulltrúa. Samfylking, Píratar og Viðreisn, leyfar af gamla meirihlutanum, höfðu myndað með sér bandalag um að ganga saman til meirihlutaviðræðna en Samfylking, Framsókn og Píratar hefðu getað myndað 12 fulltrúa meirihluta. Vinstri græn höfðu gefið út að þau myndu ekki ganga í samstarf með gamla meirihlutanum.[4] Í nýjum meirihlutasáttmála var meðal annars lögð áhersla á húsnæðisátak í Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, á Hlíðarenda, í Gufunesi og á Ártúnshöfða, viðhaldsátak í leik- grunn- og frístundahúsnæði, að hefða gerð umhverfismats vegna Sundabrautar, að stofna framkvæmdarnefnd um þjóðarhöll, að hækka frístundastyrk, endurvekja næturstrætó og framkvæmdir við Hlemmtorg[5].
Flokkur | Listi | Atkvæði | % | Fulltrúar | |
---|---|---|---|---|---|
Sjálfstæðisflokkurinn | D | 14.686 | 24,5 | 6 | |
Samfylkingin | S | 12.164 | 20,29 | 5 | |
Framsóknarflokkurinn | B | 11.227 | 18,73 | 4 | |
Píratar | P | 6.970 | 11,63 | 3 | |
Sósíalistaflokkur Íslands | J | 4.618 | 7,7 | 2 | |
Viðreisn | C | 3.111 | 5,19 | 1 | |
Flokkur fólksins | F | 2.701 | 4,51 | 1 | |
Vinstrihreyfingin - grænt framboð | V | 2.396 | 4 | 1 | |
Miðflokkurinn | M | 1.467 | 2,45 | 0 | |
Aðrir framboðslistar | 609 | 1,01 | 0 |
Nr. | Kjörnir borgarfulltrúar | Flokkur | Atkv. | |
---|---|---|---|---|
1 | Hildur Björnsdóttir | D | 14.686 | |
2 | Dagur B. Eggertsson | S | 12.164 | |
3 | Einar Þorsteinsson | B | 11.227 | |
4 | Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir | D | 7.343 | |
5 | Dóra Björt Guðjónsdóttir | P | 6.970 | |
6 | Heiða Björg Hilmisdóttir | S | 6.082 | |
7 | Árelía Eydís Guðmundsdóttir | B | 5.614 | |
8 | Kjartan Magnússon | D | 4.895 | |
9 | Sanna Magdalena Mörtudóttir | J | 4.618 | |
10 | Skúli Þór Helgason | S | 4.055 | |
11 | Magnea Gná Jóhannsdóttir | B | 4.055 | |
12 | Marta Guðjónsdóttir | D | 3.672 | |
13 | Alexandra Briem | P | 3.485 | |
14 | Þórdís Lóa Þórhallsdóttir | C | 3.111 | |
15 | Sabine Leskopf | S | 3.041 | |
16 | Björn Gíslason | D | 2.937 | |
17 | Aðalsteinn Haukur Sverrisson | B | 2.807 | |
18 | Kolbrún Baldursdóttir | F | 2.701 | |
19 | Friðjón R. Friðjónsson | D | 2.448 | |
20 | Hjálmar Sveinsson | S | 2.433 | |
21 | Líf Magneudóttir | V | 2.396 | |
22 | Magnús Davíð Norðdahl | P | 2.323 | |
23 | Trausti Breiðfjörð Magnússon | J | 2.309 |
Fyrrverandi meirihlutar
breytaÁ árunum 1930-2018 voru borgarfulltrúar 15 og því þurfti 8 eða fleiri til að mynda meirihluta:
Frá árinu 2018 hafa borgarfulltrúar verið 23 talsins og því þarf 12 eða fleiri til að mynda meirihluta:
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | |
2018-2022 | Sjálfstæðisflokkurinn |
Samfylking Meirihluti |
Viðreisn Meirihluti |
Píratar Meirihluti |
Sósíalistaflokkur Íslands |
Miðflokkurinn |
Vinstrigrænir Meirihluti |
Flokkur fólksins |
Sviptingar í borgarstjórn á kjörtímabilinu 2006 - 2010
breytaFrá 11. júní 2006 til 16. október 2007 mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn meirihluta og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var borgarstjóri. Upp úr því samstarfi slitnaði haustið 2007 vegna deilna um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy. Frá 16. október 2007 til 24. janúar 2008 mynduðu allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur meirihluta með Dag B. Eggertsson sem borgarstjóra. Upp úr því samstarfi slitnaði hinn 24. janúar 2008 þegar Ólafur F. Magnússon myndaði meirihluta með sjálfstæðismönnum og settist sjálfur í stól borgarstjóra, en honum hafði fundist hlutur sinn í fyrra samstarfi heldur rýr. Ýmsir örðugleikar gerðu þó einnig vart við sig í því samstarfi og skoðanakannanir gáfu til kynna að nýi meirihlutinn missti sífellt fylgi. Síðsumars slitu sjálfstæðismenn svo samstarfinu og mynduðu nýjan meirihluta með framsóknarmanninum Óskari Bergssyni hinn 21. ágúst 2008, en þá varð Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, sá fjórði á kjörtímabilinu.
Tilvísanir
breyta- ↑ Fundir borgarstjórnar
- ↑ Völd borgarstjórnar
- ↑ „Reykjavík 2022“. kosningasaga. 24. janúar 2022. Sótt 20. september 2022.
- ↑ „VG ætlar ekki í samstarf með fráfarandi meirihluta í borginni“. DV. 15. maí 2022. Sótt 20. september 2022.
- ↑ Meirihluti Rvk (2022). „Meirihlutasáttmáli Reykjavík 2022“ (PDF). Sótt 09 2022.