[go: up one dir, main page]

Örn og Örlygur hf. var íslensk bókaútgáfa sem var stofnuð árið 1966 af Örlygi Hálfdanarsyni og Erni Maríussyni sem áður höfðu fengist við útgáfu Ferðahandbókarinnar í tvö ár.

Útgáfan markaði sér sérstöðu með útgáfu stórra myndskreyttra handbóka og ritraða um almennt efni í stóru bandi prentaðar á vandaðan pappír. Árið 1990 kom út hjá forlaginu Íslenska alfræðiorðabókin A–Ö sem þótti tímamótaverk á íslenskum bókamarkaði. Útgáfa Alfræðibókarinnar var forlaginu þung í skauti og árið 1994 fór það í greiðslustöðvun.[1] Útgáfa hélt áfram á vegum Bókaklúbba Arnar og Örlygs sem síðar nefndist Íslenska bókaútgáfan til 2003.

Heimildir

breyta
  1. „Örn og Örlygur í greiðslustöðvun“, DV, 9. apríl 1994, s. 2. (Tímarit.is)