[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Naalakkersuisut

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Naalakkersuisut, grænlenska landsstjórnin er handhafi framkvæmdavaldsins í stjórnkerfi grænlensku heimastjórnarinnar. Hún samsvarar ríkisstjórn í innanlandsmálum Grænlands og er landsstjórnarformaðurinn, Naalakkersuisut siulittaasuat, ígildi forsætisráðherra. Stjórnin situr í skjóli meirihluta landsþingsins, Inatsisartut, þar sem eiga sæti 31 fulltrúi.

Fyrstu landsþingskosningarnar á Grænlandi voru haldnar árið 1979 og eru þær að jafnaði á fjögurra ára fresti. Jonathan Motzfeldt úr Siumut, flokki jafnaðarmanna, varð fyrsti formaður landsstjórnarinnar. Núverandi formaður (2021) er Múte Bourup Egede úr Inuit Ataqatigiit.

Núverandi landsstjórn (2021-)

[breyta | breyta frumkóða]
  • Múte B. Egede, landsstjórnarformaður
  • Aqqaluaq B. Egede, sjávarútvegsmál
  • Pele Broberg, utanríkismál-, viðskipti og umhverfismál
  • Kirsten Fencker, heilbrigðismál
  • Peter P. Olsen, menntamál, menning og kirkjumál
  • Mimi Karlsen, félags- og vinnumarkaðsmál
  • Naaja Nathanielsen, húsnæðismál, stjórn innviða, hráefnisframleiðsla og jafnréttismál
  • Asii Chemnitz Narup, fjármál og innanríkismál
  • Eqaluk Høegh, fjölskyldumál, málefni barna og dómsmál
  • Kalistat Lund, varnar- og öryggismál og orkumál