Mihaly Csikszentmihalyi
Útlit
Mihaly Csikszentmihalyi (f. 29. september 1934 - 20. október 2021) var ungverskur og bandarískur sálfræðingur. Hann var þekktur fyrir kenningar sínar um flæði og jákvæða sálfræði. Hugmynd hans um flæði er að þegar fólk einbeitir sér að krefjandi viðfangsefni sem það ræður við verði til hugarástand sem hann kallar flæði, fólk verður hugfangið, ákaft og ánægt.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Kristján Kristjánsson. (2011). Jákvæða sálfræðin gengur í skóla. Hamingja, skapgerðarstyrkleikar og lífsleikni. Ráðstefnurit Netlu – Menntakvika 2011. Geymt 26 júní 2019 í Wayback Machine
- Ingrid Kuhlman, Hvað gerir þig hamingjusama(n)?, Frjáls verslun, 5. tölublað (01.05.2009), Blaðsíða 94-99