[go: up one dir, main page]

Fara í innihald

Lindsey McKeon

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lindsey McKeon
FæddLindey Johnson McKeon
11. mars 1982 (1982-03-11) (42 ára)
Ár virk1995 -
Helstu hlutverk
Katie Peterson í Saved by the Bell: The New Class
Taylor James í One Tree Hill
Tessa í Supernatural
Marah Lewis í The Guiding Light

Lindsey McKeon (fædd Lindsey Johnson McKeon 11. mars, 1982) er bandarísk leikkona sem er þekktust fyrir hlutverk sín í Saved by the Bell: The New Class, One Tree Hill, The Guiding Light og Supernatural.

McKeon fæddist í Summit, New Jersey en ólst upp í Los Angeles, Kaliforníu.[1] McKeon hefur verið gift Brant Hively síðan árið 2013.[2]

Fyrsta sjónvarpshlutverk McKeon var árið 1995 í Boy Meets World. Síðan þá hefur hún komið fram sem gestaleikari í þáttum á borð við 3rd Rock from the Sun, CSI: Miami, Cold Case, Veronica Mars, Necessary Roughness og NCIS.

Frá árunum 1996-2000, lék McKeon eitt af aðahlutverkunum í Saved by the Bell: The New Class sem Katie Peterson. Árið 2000 lék hún persónuna Stella í unglinga/drama seríunni Opposite Sex en aðeins ein sería var gerð.

McKeon var með stór gestahluverk í The Guiding Light sem Marah Lewis, One Tree Hill sem Taylor James og Supernatural sem Tessa.

Fyrsta kvikmyndahlutverk McKeon var árið 2003 í Shredder. Síðan þá hefur hún komið fram í kvikmyndum á borð við What Doesn´t Kill You, Tandem,Indigenous og Flock of Dudes.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Ævisaga Lindsey McKeon á IMDB síðunni (Skoðað 14.04.2016)
  2. „Umfjöllun um brúðkaup McKeon og Hively á Tulle & Chantilly vefsíðunni (Skoðað 14.04.2016)“. Afrit af upprunalegu geymt þann 9. október 2018. Sótt 14. apríl 2016.