Helena Sverrisdóttir
Útlit
Persónulegar upplýsingar | |
---|---|
Fæðingardagur | 11. mars 1988 Reykjavík, Ísland |
Hæð | 184 cm (6 ft 0 in) |
Körfuboltaferill | |
Háskóli | TCU (2007–2011) |
Landslið | Ísland (2002–2023) |
Leikferill | 2000–2023 |
Leikstaða | Framherji |
Liðsferill | |
Sem leikmaður: | |
2000–2007 | Haukar |
2011–2013 | Good Angels Kosice |
2013–2014 | Diósgyőri VTK |
2014–2015 | CCC Polkowise |
2015–2018 | Haukar |
2017–2018 | → Good Angels Kosice |
2018 | Ceglédi EKK |
2018–2021 | Valur |
2021–2023 | Haukar |
Sem þjálfari: | |
2015–2016 | Haukar |
2020–2021 | Valur (aðstoðarþ.) |
Helena Sverrisdóttir (fædd 11. mars 1988) er íslenskur fyrrum körfuknattleikskona. Helena var um margra ára skeið besta körfuknattleikskona Íslands en hún hefur verið valin Körfuknattleikskona árins 12 sinnum og hefur hlotið nafnbótina lang oftast kvenna á Íslandi. Helena var lykilleikmaður Vals árið 2019 og leiddi lið sitt til deildarmeistaratitils, Íslandsmeistaratitils og Bikarmeistaratitils en þetta voru fyrstu stóru titlar kvennakörfunnar í Val.[1] Á ferlinum varð hún fimm sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari. Hún varð einnig tvívegis Slóvakíumeistari og þrívegis bikarmeistari þar í landi.
Landsliðsferill
[breyta | breyta frumkóða]Helena er leikjahæsti leikmaður í sögu Íslenska kvennalandsliðið í körfuknattleik en hún lék 81 leik á árunum 2002 til 2023.[2][3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ „Helena Sverrisdóttir Körfuknattleikskona ársins 2019“. www.valur.is. Sótt 8. febrúar 2021.
- ↑ „KKÍ | A landslið“. kki.is. Sótt 2. desember 2017.
- ↑ „Sú besta hætt eftir 30 ár í körfubolta“. Morgunblaðið. 19. nóvember 2023. Sótt 19. nóvember 2023.