Bikarkeppni karla í knattspyrnu
Stofnuð | 1960 |
---|---|
Ríki | Ísland |
Fjöldi liða | 32 |
Keppnistímabil | apríl til júní |
Núverandi meistarar | KA (1) |
Sigursælasta lið | KR (14) |
Úrslitaleikur | KA - Víkingur - , Laugardalsvelli (2024) |
Bikarkeppni karla í knattspyrnu (Mjólkurbikar karla) er keppni á Íslandi sem fer fram milli aðildarfélaga KSÍ. Leikið er samkvæmt útsláttarfyrirkomulagi þannig að sigurvegari leiks heldur áfram keppni en taplið er úr leik. Viðureignir eru valdar af handahófi. Í bikarkeppninni er leikið til þrautar. Sé jafnt eftir venjulegan leiktíma skal framlengt og sé enn jafnt skal fara fram vítaspyrnukeppni.
Aðalstyrktaraðili er Mjólkursamsalan. Mótið tók aftur upp nafnið Mjólkurbikarinn frá og með árinu 2018 en bikarkeppnin bar einnig sama nafn á árunum frá 1986-1996.[1] Á upphafsárum keppninnar frá 1960 til 1972 var úrslitaleikurinn leikinn á Melavellinum, sem var malarvöllur. En frá árinu 1973 hefur úrslitaleikurinn verið leikinn á Laugardalsvelli.
Undankeppni hefst að venju í aprílmánuði en í henni leika öll félög að frátöldum þeim sem taka þátt í Úrvalsdeild karla.
Svæðakeppni skal viðhöfð í undankeppninni og hún uppsett þannig að 20 lið komist áfram í aðalkeppnina, 32-liða úrslitin, ásamt 12 liðum Úrvalsdeildarinnar.[2]
Úrslitaleikur Mjólkurbikars karla 2022, á milli FH og Víkings fór fram á Laugardalsvelli þann 1. október 2022.
KA-menn eru Mjólkurbikarmeistarar árið 2024.
Sigurvegarar
[breyta | breyta frumkóða]Styrktaraðilar
[breyta | breyta frumkóða]Nafn bikarkeppninnar
[breyta | breyta frumkóða]
Tímabil |
Ár |
Styrktaraðili |
26 | 1960-1985 | enginn |
11 | 1986-1996 | Mjólkurbikar karla |
10 | 1997-2002 | Coca-Cola bikar karla |
8 | 2003-2010 | VISA-bikar karla |
1 | 2011 | Valitor-bikar karla |
6 | 2012-2017 | Borgunarbikar karla |
2 | 2018- | Mjólkurbikar karla |
Verðlaunafé bikarkeppninnar
[breyta | breyta frumkóða]Upplýsingar úr ársskýrslu KSÍ[3]
Sæti | Verðlaunafé |
---|---|
1 | 1.000.000 kr. |
2 | 500.000 kr. |
3-4 | 300.000 kr. |
5-8 | 200.000 kr. |
9-16 | 137.500 kr. |
Úrslitaleikir bikakeppninnar
[breyta | breyta frumkóða]Sigrar í úrslitaleikjum
[breyta | breyta frumkóða]Félag | Titlar | Ár |
---|---|---|
KR | 14 | 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, 1967, 1994, 1995, 1999, 2008, 2011, 2012, 2014 |
Valur | 11 | 1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992, 2005, 2015, 2016 |
ÍA | 9 | 1978, 1982, 1983, 1984, 1986, 1993, 1996, 2000, 2003 |
Fram | 8 | 1970, 1973, 1979, 1980, 1985, 1987, 1989, 2013 |
ÍBV | 5 | 1968, 1972, 1981, 1998, 2017 |
Víkingur | 5 | 1971, 2019, 2021, 2022, 2023 |
Keflavík | 4 | 1975, 1997, 2004, 2006 |
FH | 2 | 2007, 2010 |
Fylkir | 2 | 2001, 2002 |
KA | 1 | 2024 |
Stjarnan | 1 | 2018 |
Breiðablik | 1 | 2009 |
ÍBA | 1 | 1969 |
Sjá lista yfir titla í íslenskum íþróttum
Besti árangur annarra liða
[breyta | breyta frumkóða]- 2. sæti
- Undanúrslit
- Þróttur R. 7 sinnum (1966, 1978, 1979, 1981, 1984, 2006, 2012)
- Vestri 3 sinnum (1960 sem ÍBÍ, 2011 sem BÍ/Bolungarvík, 2021)
- Víkingur Ó. 2 sinnum (2010, 2018)
- Selfoss 2 sinnum (1969, 2016)
- Leiknir R. 1 sinni (2017)
- HK 1 sinni (2004)
- Völsungur 1 sinni (1974)
- 8-liða úrslit
- Haukar 3 sinnum (1972, 2007, 2008)
- Þróttur N. 2 sinnum (1978, 1980) +
- Ægir 1 sinni (2022)
- Kórdrengir 1 sinni (2022) +
- ÍR 1 sinni (2021)
- Njarðvík 1 sinni (2019)
- Grótta 1 sinni (2013)
- Sindri 1 sinni (1999)
- Skallagrímur 1 sinni (1997)
- Tindastóll 1 sinni (1988)
- Reynir S. 1 sinni (1982)
- Einherji 1 sinni (1978)
- Hörður Ísafirði 1 sinni (1970)
- KS 1 sinni (1980) +
- Týr Ve. 1 sinni (1962) +
- 16-liða úrslit
- Afturelding 7 sinnum (2003, 2004, 2012, 2015, 2020, 2022, 2024)
- Fjarðabyggð 5 sinnum (2006, 2007, 2009, 2010, 2015) +
- Hamar 3 sinnum (2008, 2011, 2014)
- Höttur 3 sinnum (1993, 2009, 2012) +
- KV 2 sinnum (2014, 2015)
- Huginn 2 sinnum (1982, 1989) +
- Austri 2 sinnum (1984, 1986) +
- ÍH 1 sinni (2024)
- Dalvík/Reynir 1 sinni (2022)
- KFS 1 sinni (2021)
- Kári 1 sinni (2018)
- Magni 1 sinni (2013)
- Knattspyrnufélag Breiðholts 1 sinni (2012)
- Knattspyrnufélagið Valur/Austri 1 sinni (1999) +
- Valur Reyðarfirði 1 sinni (1992) +
- Ármann 1 sinni (1970, 12-liða úrslit) +
- Íþróttafélag Kópavogs 1 sinni (1991) +
- Ungmennafélag Hveragerðis og Ölfuss 1 sinni (1986) +
- Knattspyrnufélagið Árvakur 1 sinni (1985) +
- Ungmennafélagið Víkverji 1 sinni (1983) +
- Ungmennafélagið Árroðinn 1 sinni (1981) +
- Reynir Árskógsströnd 1 sinni (1977) +
- Þór Þ. 1 sinni (1975) +
+ Keppir ekki lengur undir eigin merkjum. ++ Gæti enn orðið bikarmeistari
Flest mörk í úrslitaleikjum
[breyta | breyta frumkóða]Mörk | Leikmaður |
---|---|
6 | Gunnar Felixson |
6 | Guðmundur Steinsson |
4 | Marteinn Geirsson |
4 | / Pétur Pétursson (ÍA 3, KR 1) |
4 | Pétur Ormslev |
Áhorfendur á úrslitaleikjum
[breyta | breyta frumkóða]Fjöldi áhorfenda á úrslitaleikjum og dagsetningar þeirra frá aldamótum[4]
Nafn | Ár | Viðureign | Fjöldi | Dagsetning | |
---|---|---|---|---|---|
Coca-Cola bikar karla | 2001 | Fylkir | KA | 2.839 | 29.september |
Coca-Cola bikar karla | 2002 | Fram | Fylkir | 3.376 | 28.september |
VISA-bikar karla | 2003 | ÍA | FH | 4.723 | 27.september |
VISA-bikar karla | 2004 | KA | Keflavík | 2.049 | 2.október |
VISA-bikar karla | 2005 | Fram | Valur | 5.162 | 24.september |
VISA-bikar karla | 2006 | KR | Keflavík | 4.699 | 30.september |
VISA-bikar karla | 2007 | FH | Fjölnir | 3.739 | 6.október |
VISA-bikar karla | 2008 | KR | Fjölnir | 4.524 | 4.október |
VISA-bikar karla | 2009 | Fram | Breiðablik | 4.766 | 3.október |
VISA-bikar karla | 2010 | FH | KR | 5.438 | 14.ágúst |
Valitor-bikar karla | 2011 | Þór Ak. | KR | 5.327 | 13.ágúst |
Borgunarbikar karla | 2012 | Stjarnan | KR | 5.080 | 18.ágúst |
Borgunarbikar karla | 2013 | Fram | Stjarnan | 4.318 | 17.ágúst |
Borgunarbikar karla | 2014 | KR | Keflavík | 4.694 | 16.ágúst |
Borgunarbikar karla | 2015 | Valur | KR | 5.751 | 15.ágúst |
Borgunarbikar karla | 2016 | Valur | ÍBV | 3.511 | 13.ágúst |
Borgunarbikar karla | 2017 | ÍBV | FH | 3.094 | 12.ágúst |
Mjólkurbikar karla | 2018 | Stjarnan | Breiðablik | 3.814 | 15.september |
Mjólkurbikar karla | 2019 | Víkingur | FH | 4.257 | 14.september |
Mjólkurbikar karla | 2021 | Víkingur | ÍA | 4.829 | 16.október |
Mjólkurbikar karla | 2022 | Víkingur | FH | 4.381 | 1.október |
Mjólkurbikar karla | 2023 | Víkingur | KA | 3.845 | 16.september |
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]- Úrvalsdeild karla í knattspyrnu
- Mjólkursamsalan
- Knattspyrnusamband Íslands
- Bikarkeppni kvenna í knattspyrnu
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „VISA-bikar“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 15. maí 2007.
- ↑ hanssteinar (5. apríl 2018). „Mjólkurbikarinn snýr aftur“. RÚV (enska). Sótt 11. september 2019.
- ↑ „Reglugerð KSÍ um knattspyrnumót“ (PDF). KSÍ. apríl 2013. Sótt september 2019.
- ↑ „Ársskýrsla KSÍ“ (PDF). KSÍ. 2019.
- ↑ „Stakt mót - Knattspyrnusamband Íslands“. www.ksi.is. Sótt 11. september 2019.
|